Yfirburðasigur í Tsjetsjeníu 30. ágúst 2004 00:01
Rússneskum stjórnvöldum varð að ósk sinni þegar Alu Alkhanov var lýstur sigurvegari tsjetsjensku forsetakosninganna með nær 74 prósent greiddra atkvæða. Þessi helsti yfirmaður lögreglunnar í Tsjetsjeníu naut stuðnings stjórnvalda í Moskvu og hafa stjórnarandstæðingar kvartað undan víðfeðmu kosningasvindli. Alkhanov tekur því við forsetaembættinu sem Akhmad Kadírov gegndi þegar hann var ráðinn af dögum í maí. Kadírov varð sá fjórði af síðustu fimm forsetum landsins til að verða ráðinn af dögum meðan hann gegndi embætti. Embættið hlýtur því að teljast eitthvað það hættulegasta sem völ er á. Rússar vonast til þess að Alkhanov takist að draga máttinn úr aðskilnaðarsinnum sem hafa háð vopnaða uppreisn gegn Rússum meira og minna síðasta áratuginn. Viðhorf almennings til hans er þó öllu blendnara. Sumir vonast til að honum takist að koma á friði, aðrir telja hann aðeins lepp Moskvustjórnar. Það er ekki nýtt að alvarlegar athugasemdir séu gerðar við kosningar í Tsjetsjeníu. Kosningunum þegar Akhmad Kadírov var kjörinn forseti í fyrra var lýst sem farsa sem ætti lítið skylt við lýðræðislegar kosningar. Kjörstjórn segir að um 80 prósent atkvæðabærra manna hafi greitt atkvæði í kosningunum á sunnudag. Aðrir hafa bent á að lítið hafi verið um að vera á sumum kjörstöðum. Kvartað hefur verið undan því að þrýst hafi verið á kjósendur að kjósa Alkhanov á sumum kjörstöðum og að miklum fjölda tilbúinna atkvæðaseðla með nafni Alkhanov hafi verið smyglað í kjörkassana. Að einu leyti líktust kosningarnar mjög rússneskum kosningum síðustu ára. Alkhanov var sífellt í sjónvarpsfréttum meðan á kosningabaráttunni stóð en þar var varla eða ekki minnst á mótframbjóðendur hans. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur notið svipaðrar meðferðar heima við.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira