Annar skipverjanna látinn 30. ágúst 2004 00:01
Annar skipverjanna á kanadísku skútunni sem sökk síðdegis vestur af landinu er látinn. Hinn er óslasaður en er enn á sjúkrahúsi. Björgunarstjórnstöðin í Halifax í Kanada hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 17 í dag og tilkynnti að kanadísk skúta væri að sökkva um 25 sjómílur suðvestur af Malarrifi. Björgunarstjórnstöðin í Halifax hafði þessar upplýsingar frá ættingjum áhafnar skútunnar sem höfðu náð símasambandi við þá með gervihnattasíma. Um borð í skútunni voru tveir menn. Símasamband við skútuna hafði rofnað og tilraunir til ná í hana aftur höfðu ekki borið árangur. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði út áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, klukkan 17:04 í beinu framhaldi af samtali við björgunarstjórnstöðina í Halifax. Einnig var haft samband við Tilkynningarskyldu íslenskra skipa og óskað eftir að neyðarkall yrði sent út á rás 16 svo að skip á svæðinu fengju upplýsingar um málið. Áhöfn TF-SYN, Fokker flugvélar Landhelgisgæslunnar, var einnig kölluð út ásamt Flugbjörgunarsveitinni til að leita að skútunni. Þá var Varnarliðið beðið um að setja þyrlu í viðbragðsstöðu. TF-LIF fór í loftið kukkan 17:28. Áhöfn hennar hafði samband við stjórnstöð klukkan 18:05 og hafði leit þá engan árangur borið. Aðstæður til leitar og björgunar voru ekki góðar. Mjög hvasst var á svæðinu eða 20-25 metrar á sekúndu og skyggni um 2 kílómetrar og lágskýjað. Ölduhæð var 4-5 metrar. Vegna leitarskilyrða fór TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, ekki í loftið. Skömmu síðar, eða klukkan 18:13 sá áhöfn TF-LIF mennina í sjónum. Annar þeirra var í björgunargalla en hinn í vesti. Búið var að hífa þá um borð klukkan 18:20. Að sögn Einars Valssonar stýrimanns í TF-LIF var með ólíkindum að mennirnir skyldu finnast þetta fljótt því þeir voru í dökkum göllum og aðstæður til leitar þetta slæmar.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira