Enski boltinn

Mbappe aftur orðaður við Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe fagnar marki með Paris Saint Germain um helgina.
Kylian Mbappe fagnar marki með Paris Saint Germain um helgina. AP/Francois Mori

Franska stórstjarnan Kylian Mbappe þykir líklegur til að fara frá Paris Saint Germain á frjálsri sölu næsta sumar og Real Madrid er ekki eina félagið sem kemur til greina.

Mbappe hefur áður verið orðaður við Liverpool og nú eru ensku blöðin aftur farin að velta sér upp úr slíkum vangaveltum.

Hinn 22 ára gamli Mbappe er að mati margra einn af framtíðarstórstjörnum fótboltans og líklegur til að taka við því hlutverki af Lionel Messi og Cristiano Ronaldo.

Hann er þegar búinn að gera margt á sínum ferli og það eru enn átta ár í það að hann verði þrítugur.

Það er því ekkert skrýtið að bestu félög heims vilji fá hann og að Paris Saint Germain reyni allt til að fá hann til að framlengja samning sinn.

Erlendu blöðin eru vissulega að orða Mbappe mikið við Real Madrid en Liverpool er ekki alveg út úr myndinni ef marka má frétt Daily Mirror.

Þar er því haldið fram að Michael Edwards sé að búinn að safna pening fyrir launin til Kylian Mbappe en um leið þýði það að Liverpool muni ekki kaupa neinn leikmann í þessum glugga né heldur í janúarglugganum.

Liverpool er búið að selja þá Harry Wilson, Marko Grujic og Taiwo Awoniyi í haust og þeir Divock Origi og Xherdan Shaqiri verða líklega seldir líka.

Þá gæti farið svo að annað hvort Mohamed Salah eða Sadio Mane verði fórnað til að búa til pláss fyrir Mbappe.

Við höfum auðvitað séð svona vangaveltur áður og þetta er bara slúður eins og er. Það er samt athyglisvert að nafn Liverpool kemur alltaf upp aftur og aftur þegar rætt er um framtíð Mbappe.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×