Veltur ekki bara á Þorleifi að bæta Íslandsmet í bakgarðshlaupi Aron Guðmundsson skrifar 21. september 2026 10:00 Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi í bakgarðshlaupum. Vísir/Sigurjón Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi í Bakgarðshlaupum, á sér draum um að bæta Íslandsmetið enn einu sinni en það er ekki bara undir honum einum sjálfum komið að gera það.
Þorleifur hljóp tíu hringi í nýafstöðnu Bakgarðshlaupi í Heiðmörk líkt og vel flestir í íslenska landsliðinu sem eiga fyrir höndum landsliðskeppni í næsta mánuði. Mánuður er í stóru keppnina hjá ykkur í landsliðinu. Hvernig er staðan á þér sjálfum fyrir þá keppni og ertu með einhver markmið í huga? „Ég er í toppstandi. Ég hef verið að einblína á þessa keppni svolítið lengi. Markmiðið er í rauninni bara að hlaupa þangað til ég má ekki hlaupa lengur. Það er enginn hringjafjöldi, það kemur bara í ljós hvað hinir fara langt. Hvað þeir leyfa mér að fara langt.“ Klippa: Óskar eftir félaga til að slá Íslandsmetið Landsliðskeppnin fer fram í fjölmörgum löndum á sama tíma. Íslenska landsliðið mun hlaupa í Elliðaárdalnum. Þorleifur er Íslandsmethafi í greininni en metið setti hann einmitt í landsliðskeppni í Elliðaárdalnum í október fyrir tveimur árum þegar hann hljóp 62 hringi, eða um 415 kílómetra. Íslandsmethafi í greininni. Áttu þér draum um að bæta Íslandsmetið aftur? „Já, það væri náttúrulega alveg frábært og frá minni hlið séð þá veltur það ekki bara á mér. Ef einhver er til í að koma og taka 62. hringinn með mér þá er ég tilbúinn að fara hring 63.“ Í Bakgarðshlaupum þarf nefnilega tvo til að dansa tangó. Hlaupinn er 6,7 kílómetra hringur sem þarf að klára innan klukkustundar. Ávallt er ræst út í nýjan hring á heila tímanum. Ástæðan fyrir því að það er ekki bara undir Þorleifi einum komið að bæta Íslandsmetið er að hann myndi ekki aðeins sjálfur þurfa að klukka núverandi Íslandsmet, hann þyrfti annan keppanda með sér í þá vegferð. Þegar aðeins einn keppandi er eftir í Bakgarðshlaupi þarf sá hinn sami að hlaupa einn hring til viðbótar til þess að tryggja sigurinn og fær svo ekki að hlaupa meira.
Bakgarðshlaup Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Sjá meira