Brig­hton kom til baka gegn meisturum Man City

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Brighton fagna einu marka sinna í kvöld.
Leikmenn Brighton fagna einu marka sinna í kvöld. Gareth Fuller/Getty Images

Brighton & Hove Albion vann óvæntan 3-2 sigur á meisturum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Man City komst í 2-0 en heimamenn komu til baka og skoruðu þrívegis.

İlkay Gündoğan kom gestunum yfir strax á annarri mínútu leiksins en þegar tíu mínútur voru komnar á klukkuna fékk portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo rautt spjald fyrir brot á Danny Welbeck sem var talinn vera sloppinn einn í gegn.

Það kom ekki að sök í fyrri hálfleik og staðan 1-0 er liðin gengu til búningsherbergja. Phil Foden kom gestunum svo í 2-0 í upphafi síðari hálfleiks áður en endurkoman hófst.

Leandro Trossard minnkaði muninn á 50. mínútu, Adam Webster jafnaði metin á 72. mínútu og fjórum mínútum síðar tryggði hinn gríðarlega hávaxni Dan Burn heimamönnum sigurinn.

Lokatölur eins og áður sagði 3-2 og Brighton þar með komið upp í 15. sæti á meðan Manchester City eru enn í efsta sætinu enda orðnir meistarar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira