Erlent

Talinn bareigandi í Nyakizu

Finnar hafa handtekið mann sem grunaður er um að vera „Bareigandinn í Nyakizu“ og hafa staðið fyrir fjölda­morðum í Rúanda.
Finnar hafa handtekið mann sem grunaður er um að vera „Bareigandinn í Nyakizu“ og hafa staðið fyrir fjölda­morðum í Rúanda.

Maður frá Rúanda hefur verið handtekinn í Finnlandi grunaður um að hafa skipulagt og staðið fyrir þjóðarmorðum í Rúanda. Maðurinn, sem er 55 ára gamall, gekk undir heitinu „Bareigandinn í Nyakizu“ og er í alþjóðlegum mannréttindaskýrslum talinn ábyrgur fyrir einu af fyrstu fjöldamorðunum í Rúanda vorið 1994.

Samkvæmt skýrslunum hefur maðurinn skipulagt þjálfun stríðsmanna, útvegað vopn og skipulagt fjöldamorð. Hann er baptistaprestur að starfi og hútúi frá Búrúndí að uppruna. Maðurinn kom til Rúanda árið 1972, þá 21 árs gamall, kvæntist þar tútsí­konu og stjórnaði flóttamannabúðum fyrir hútúa frá Búrúndí auk þess að reka bar.

Finnlandssænska Borgåbladet segir að hann hafi komið til Finnlands árið 2003 og starfað með baptistum í Vaasa og Borgå.

Þjóðarmorðin í Rúanda hófust þegar flugvél með forseta Rúanda og Búrúndí var skotin niður í byrjun apríl 1994. Viku síðar á Rúandamaðurinn að hafa tekið þátt í einum af fyrstu fjöldamorðunum í landinu þegar 21 tútsímaður var fluttur á bar hans að næturlagi. Vitni segist hafa séð þegar fjórir mannanna voru barðir til bana og líkunum kastað í klóakbrunn. Viku síðar á maðurinn svo að hafa leitt morð á heilu fjölskyldunum á Nyakizu-fjalli og síðan fylgt flóttamannastraumnum úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×