Erlent

Fluginu frestað vegna blótsyrða

Flugi farþegavélar frá Las Vegas til Detroit var aflýst á laugardag vegna ljóts orðbragðs sem flugmaður vélarinnar viðhafði í áheyrn farþega, auk þess sem hann blótaði einum farþega í sand og ösku.

Meðan farþegar voru að ganga um borð í vélina var flugmaðurinn í heiftarlegum samræðum í farsíma, fyrst í flugstjórnarklefanum en gekk síðan fram og inn á salerni þar sem hann hélt áfram samtalinu svo allir heyrðu.

Flugmanninum var skipað að yfirgefa vélina og verður málið rannsakað, en farþegar fengu mat og gistingu í boði flugfélagsins, Northwest Airlines.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×