Erlent

Vill ólmur gefa stóra húsið sitt

Mike Bassett, maður á sextugsaldri í Port Clinton í Ohio, hyggst gefa húsið sitt hverjum sem hafa vill. Húsið er stórt, búið góðum arni, tveimur baðherbergjum og feykistórum fataskápum, en gallinn er sá að þiggjandinn verður að flytja húsið burt fyrir 1. júlí.

„Mig langar ekkert til að rífa húsið,“ segir Bassett. „Þetta er mjög fallegt hús.“

Vilji enginn flytja húsið af lóðinni verður það þó rifið til að rýma fyrir fleiri bílastæðum við matvöruverslun og bensínstöð sem Bassett rekur þar rétt hjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×