Sjálfsmark John Terry færði Crystal Palace þrjú stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2014 14:30
Topplið Chelsea tapaði óvænt 0-1 á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag og þetta tap gæti reynst afdrifaríkt í baráttunni um enska meistaratitilinn. Chelsea er enn í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Manchester City getur nú tekið toppsætið af Chelsea-liðinu með sigri á Arsenal seinna í dag. Það var sjálfsmark fyrirliðans John Terry sem réð úrslitum á Selhurts Park en heimamenn í Crystal Palace áttu frábæran dag og voru óheppnir að bæta ekki við mörkum í leiknum. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, þurfti því að horfa upp á annað tap á stuttum tíma á móti liði úr neðri hlutanum en Chelsea tapaði 0-1 fyrir Aston Villa fyrir tveimur vikum. Stigin þrjú eru gulls ígildi fyrir lærisveina Tony Pulis en þetta var fimmti 1-0 sigur liðsins síðan að hann tók við liðinu í lok nóvember. Palace-maðurinn Yannick Bolasie fékk fínt færi í fyrri hálfleiknum og Crystal Palace átti líklega að fá vítaspyrnu þegar Gary Cahill virtist brotlegur í vítateignum. Palace-menn voru beinskeyttari en Chelsea-liðið í fyrri hálfleiknum. Jose Mourinho sendi Oscar inn á sem varamann í hálfleik en Chelsea-mönnum tókst ekki að ná almennilegum tökum á leiknum og það voru því heimamenn sem skoruðu fyrsta markið í leiknum. John Terry, fyrirliði Chelsea, varð þá fyrir því óláni að skalla boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf frá Joel Ward. Crystal Palace var því komið í 1-0 en það voru 38 mínútur eftir. Jason Puncheon var nálægt því að koma Crystal Palace í 2-0 eftir flotta skyndisókn og sendingu frá Cameron Jerome. Chelsea reyndi að ná inn jöfnunarmarkinu en liðsmenn Crystal Palace ógnuðu hvað eftir annað í skyndisóknum. Cameron Jerome átti meðal annars skot í stöngina og Jason Puncheon fékk fínt færi en Petr Cech varði.
Enski boltinn Mest lesið Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Stórar breytingar og tímamót hjá Red Bull Formúla 1 Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Dramatískur sigur Liverpool án Salah Fótbolti Chelsea glutraði niður forystu og tapaði Fótbolti Saka forseta FIFA um ítrekuð brot og fara fram á rannsókn Fótbolti Öruggur sigur Tottenham og markaveisla í Hollandi Fótbolti Stefán Teitur spilaði í jafntefli gegn toppliðinu Fótbolti Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Handbolti Fleiri fréttir Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök Bestu mörkin í desember 2006 verða vart toppuð: Scholes, Essien og Taylor Luke Littler fagnaði vel meðal stuðningsmanna Man. United Einmanalegt hjá Salah í ræktinni Alisson um Salah: „Afleiðing þess sem hann gerði“ Ofsótt af milljarðamæringi Sjáðu öll Manchester United-mörkin á Molineux í gær Carragher: „Ef Salah reynir að henda félaginu mínu undir rútuna veð ég í hann“ Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Dregið í enska bikarnum: Mávarnir fljúga til Manchester Slot: „Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Barton dæmdur í hálfs árs fangelsi Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Scholes segir félagið eyðileggja Mainoo Búist við að Salah verði hent úr hóp Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Sjáðu markið sem West Ham-menn sáu tvær ástæður til að dæma af Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Landsliðsmaður handtekinn í London Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Guéhi hetjan og Palace upp í fjórða sæti Hópslagsmál á vellinum: „Áður en ég vissi af flugu hnefar út um allt“ Hömrunum heitt í hamsi eftir dramatík Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Karólína lagði upp en Hlín meiddist Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Kominn með nóg og vill fara frá United Fyrrum eigandi Liverpool látinn Sjá meira