Moyes: Sir Alex hefði líka verið í vandræðum á þessu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2014 11:00
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, heyrir lítið annað en gagnrýnisraddir þessa dagana enda gengur illa hjá liðinu í ensku úrvalsdeildinni. Hann sjálfur segir vandamálið vera leikmannahópurinn en ekki stjórinn. Manchester United er í sjöunda sæti og með 26 stigum færra en á sama tíma í fyrra þegar Sir Alex Ferguson var knattspyrnustjóri félagsins. United vann 38 titla undir stjórn Sir Alex þar af ensku úrvalsdeildina þrettán sinnum. Manchester United mætir Aston Villa á Old Trafford í hádeginu í ensku úrvalsdeildinni og hafa harðir stuðningsmenn félagsins safnað fyrir mótmælaborða og flugvél til að fljúga með hann yfir vellinum fyrir leikinn. „Ef Sir Alex væri með liðið þá væri þetta einnig erfitt fyrir hann. Það hefði ekki skipt öllu. Þetta tímabil hefur verið svo ólíkt því Man United liði sem við þekkjum. Við verðum samt bara að halda áfram að byggja upp liðið, bæta okkur og verða betri," sagði David Moyes á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Aston Villa. Eftir flottan sigur á Olympiacos í Meistaradeildinni í síðustu viku og sigur á West Ham í framhaldinu átti United-liðið ekki möguleika í nágranna sína í Manchester City á þriðjudaginn. „Fólk gerir sér grein fyrir því að þessi leikmannahópur er að eldast og allir knattspyrnustjórar hefðu verið í vandræðum með lið Manchester United á þessu tímabili," sagði Moyes. Hér fyrir ofan má sjá kynningu á leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni.Alex Ferguson og David Moyes.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjá meira