Enski boltinn

John Terry: Það góða er að við erum ekki eins og Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
John Terry.
John Terry. Mynd/Nordic Photos/Getty
John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur varað sína menn við því að liðið þurfi að fara að komast í gang sem fyrst ef það ætli ekki að missa af lestinni í baráttunni um enska meistaratitilinn.

Chelsea tapaði á móti Marseille í Meistaradeildinni í vikunni og hefur aðeins náð að vinna einn af síðustu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.

Terry viðurkennir að þetta sé versti kafli liðsins á þeim ellefu árum sem hann hefur spilað með Chelsea. Framundan eru síðan leikir á móti Tottenham Hotspur, Manchester United og Arsenal.

„Við erum að ganga í gegnum slæman kafla en við gefumst ekki upp. Ég mun í það minnsta ekki gefast upp, stjórinn ætlar ekki að gefast upp og við erum líka með sterka karaktera í liðinu eins Didier Drogba og Florent Malouda," sagði John Terry.

John Terry á móti LiverpoolMynd/Nordic Photos/Getty
„Þetta er tímapunktur fyrir okkur alla að rísa upp. Það eru erfiðir leikir á næstunni en við erum með sterka leikmenn í okkar liði sem geta vonandi tekið þessari áskorun og komið okkur aftur af stað í titilbaráttunni," sagði Terry.

„Við sáum að Manchester United byrjaði ekki alltof vel og Arsenal hefur verið að tapa leikjum á heimavelli á móti liðum sem þeir áttu að vinna. Fyrir nokkrum vikum þá vorum við með sjö stiga forskot og með 20 marka forystu í markatölu en nú erum við farnir að elta efstu liðin. Við þurfum að komast á gott skrið og núna er fullkominn tími til þess að komast af stað á ný," sagði John Terry.

„Við þurfum að bíða í þrjú ár eftir því að vinna titilinn en kynntumst meistaratilfinningunni á ný í vor. Það var eins og að vinna titilinn í fyrsta sinn. Það gera allir okkar leikmenn sér grein fyrir því að ef við förum ekki að vinna leiki á nýjan leik þá munum við gefa United eða Arsenal titilinn þrátt fyrir að hvorugt liðið sé að spila vel þessa dagana. Það góða er að við erum ekki eins og Liverpool því við eigum enn möguleika," sagði Terry.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×