Leikmenn skiluðu sér til baka í skynsamlegu formi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. júlí 2013 07:00 Aron Einar í leik með Cardiff. Nordicphotos/Getty „
Það er enn langur vegur en meiðslin eru þó ekki jafnslæm og talið var í fyrstu. Þetta er samt óþægilegt,“ segir landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson. Akureyringurinn hrökk úr axlarlið í viðureign Íslands og Slóveníu á Laugardalsvelli þann 7. júní og vinnur nú hörðum höndum að því að styrkja öxlina. „Ég er allavega á áætlun. Sem betur fer þurfti ég ekki að fara í aðgerð. Það hefði þýtt þriggja mánaða fjarveru af vellinum,“ segir Aron. Sú ákvörðun hafi verið tekin að láta öxlina gróa og styrkja hana vel. Hann segist líka vinna í því þessa dagana að fá hausinn í lag. „Ég þarf að hætta að pæla í því að ég sé meiddur í öxlinni og fara að einbeita mér að fótboltanum,“ segir Aron. Axlarmeiðsli geta verið erfið viðureignar líkt og önnur meiðsli og skiljanlegt að menn fari sér rólega og passi sig. Hjá atvinnumönnum í knattspyrnu er það hins vegar ekki í boði. Aron Einar er í kapphlaupi við tímann að verða klár fyrir fyrsta leik Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gegn West Ham þann 17. ágúst. Hann hefur æft stíft með liði sínu undanfarnar vikur og er nýkominn úr æfingaferð til Sviss. „Ég hef tekið þátt í öllum æfingum. Ég reyni að gera allt sem hinir strákarnir gera og missi því þannig séð ekkert úr,“ segir miðjumaðurinn. Hann má þó ekki fara í nein átök í spili í æfingum. Aron Einar finnur fyrir mikilli eftirvæntingu í leikmannahópi velska liðsins sem spilar í fyrsta skipti í úrvalsdeildinni á komandi leiktíð. „Menn leggja sig mikið fram til að vinna sér sæti í liðinu og það er vel tekið á því. Menn komu líka til baka í sérstaklega skynsamlegu formi enda framundan tímabil í erfiðustu deild í heimi.“ Hann vonast til þess að vera klár í slaginn gegn West Ham. „Planið er að ná einum hálfleik eða tveimur áður en tímabilið byrjar.“
Enski boltinn Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira