Davíð Þór: Á von á tilboði frá Norrköping Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2007 12:54 Davíð Þór Viðarsson fagnar bikarmeistaratitlinum með félögum sínum í FH. Mynd/E. Stefán
Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH, er kominn aftur til Íslands eftir að hafa dvalið hjá sænska 1. deildarliðinu Norrköping í nokkra daga. „Það gekk mjög vel," sagði Davíð sem var hjá liðinu í fjóra daga. „Þeir voru aðallega að ræða við mig og sýna mér aðstöðu félagsins. Þjálfari liðsins hefur séð mig spila 3-4 sinnum og hefur þegar gert það upp við sig að hann vilji fá mig. Ég reikna því með tilboði frá félaginu og það mun þá koma í ljós hvort að FH og Norrköping nái saman annars vegar og svo hins vegar ég og félagið." Hann segir að ef það gengur eðlilega fyrir sig býst hann við því að semja við félagið. „Mér finnst það ekkert ólíklegt. Þetta er stór og flottur klúbbur og spennandi tímar framundan." Norrköping er þegar búið að tryggja sér meistaratitilinn í sænsku 1. deildinni og sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. „Þeir ætla sér að styrkja liðið með nokkrum leikmönnum til að verða samkeppnishæfir í þessari deild. Og þeir virðast vilja fá mig til að nota mig og skiptir það auðvitað máli." Garðar Gunnlaugsson og Stefán Þórðarson eru á mála hjá Norrköping en sá síðarnefndi er reyndar á leiðinni heim. „Það er fínt að aðrir Íslendingar spili með liðinu. Það hjálpar mjög mikið." Davíð Þór, sem er 24 ára gamall, lék með norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström árin 2002 til 2004. Þá spreytti hann sig einnig hjá Lokeren í Belgíu í nokkra mánuði í fyrra. „Ég tala norsku reiprennandi og sænskan verður ekkert vandamál. Það gæti einnig hjálpað mér mikið. En það er alveg ljóst að ég er ekki að fara út bara til að fara út. Í Noregi sat ég á bekknum í tvö ár með fáeinum undantekningum og hef ég engan áhuga á því. Þetta er mjög gaman þegar vel gengur en hrikalega leiðinlegt þegar illa gengur."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira