Huddersfield bjargaði stigi í Blackburn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Huddersfield náði í mikilvægt stig í fallbaráttunni í ensku Championship deildinni þegar liðið kom til baka og náði í jafntefli gegn Blackburn Rovers.

Það voru gestirnir frá Huddersfield sem komust yfir snemma leiks þegar Karlan Grant skoraði beint úr vítaspyrnu.

Heimamenn svöruðu fljótt, jöfnuðu með marki frá Lewis Holtby eftir mistök Tommy Elphick í vörninni, og Bradley Dack kom þeim svo yfir á 33. mínútu.

Blackburn fór með forystu inn í hálfeikinn en varamaðurinn Juninho Bacuna jafnaði leikinn á nýjan leik fyrir hUddersfield. Þetta var þriðji leikurinn í röð sem Bacuna skoraði í fyrir Huddersfield.

Lokatölur urðu 2-2 og er Huddersfield nú komið upp úr fallsæti eftir að hafa ekki tapað í fjórum leikjum í röð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira