Carragher segir Gylfa og félaga vera veika andlega Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. mars 2018 09:00 Gylfi Þór Sigurðsson var tekinn af velli á móti Burnley. vísir/getty
Jamie Carragher, fyrrverandi miðvörður Liverpool sem nú starfar sem einn helsti sparkspekingur Sky Sports, segir Stóra Sam Allardyce rangan mann í röngu starfi hjá Everton þar sem hann stýrir Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum. Everton lét Hollendinginn Ronald Koeman fara snemma á leiktíðinni þegar að liðið var óvænt í fallbaráttu eftir að eyða miklu í leikmenn síðasta sumar og réði inn Sam Allardyce sem aldrei hefur fallið úr úrvalsdeildinni. Stóri Sam byrjaði ágætlega en nú vilja stuðningsmenn losna við hann eftir að liðið tapaði sjötta útileiknum í röð um síðustu helgi á móti Burnley. Liðið skapar sér varla færi og þá var baulað á Allardyce þegar að hann skipti Gylfa Þór Sigurðssyni af velli þegar að liðið þurfti mest á marki að halda. „Þetta er farið að minna mig á þegar að Roy Hodgson stýrði Liverpool. Allardyce bara passar ekki í starfið,“ sagði Carragher í Monday Night Football á Sky Sports í gærkvöldi.„Allardyce virðist hafa átt að gera tvennt þegar að hann var ráðinn; halda Everton uppi og sýna að hann er meira en slökkviliðsmaður. Getur hann svo áfram verið stjóri Everton á næstu leiktíð og sýnt að hann getur gert meira en bara haldið liðum uppi? Hann er ekki að sýna það þessa stundina.“ „Stuðningsmennirnir vildu ekki fá hann. Þeir litu á hann sem mann sem stýrir Sunderland eða Crystal Palace. Hann stýrir liðum í botnbaráttu. Everton lítur öðruvísi á sig. Þetta er lið sem hefur verið að berjast um Evrópusæti,“ sagði Carragher. Þrátt fyrir að eyða fúlgum fjár í leikmannakaup finnst Carragher lítið til gæða Everton-liðsins koma. Það er þó meira í gangi þarna en bara lítil gæði. „Liðið er ekki næstum því nógu gott en það er augljóst að leikmennirnir eru veikir andlega þegar að gengið er svona. Það er ekki hægt að lýsa þessu öðruvísi,“ sagði Jamie Carragher.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Sjá meira