Manchester-liðin borguðu meiddum leikmönnum langmest á síðustu leiktíð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2017 23:00 Marcus Rashford meiddur í leik Manchester-liðanna í fyrravetur. Vísir/Getty
Meiðsli eru daglegt brauð hjá íþróttaliðum en þegar fótboltaliðin missa leikmenn í meiðsli þá eru þau að eyða stórum fjárhæðum í að borga mönnum laun sem ekkert geta hjálpað liðunum. Bleacher Report hefur tekið það saman hversu stórum upphæðum ensku félögin eyddu í að borga meiddum leikmönnum laun á síðustu leiktíð. Það er spurning hvort að það sé eitthvað í vatninu í Manchester-borg en nágrannarnir skera sig úr. Manchester-liðin tvö skipa nefnilega efstu tvö sæti þessa fróðlega lista. Manchester City missti leikmenn 30 sinnum í meiðsli á síðasta tímabili og laun þeirra námu 18,3 milljónum punda, 2,5 milljörðum íslenskra króna, þann tíma sem þeir voru frá. Leikmenn Manchester United meiddust mun oftar, 51 sinni, en United þurfti samt að borga minna í laun til þessa eða alls 17,8 milljónir punda eða 2460 milljónum íslenskra króna. Arsenal er í þriðja sætinu og West Ham er síðan á undan Liverpool. Englandsmeistarar Chelsea komast hinsvegar ekki inn á topp tíu listann. Tottenham er líka að gera eitthvað rétt í meðhöndlun sinna leikmanna því liðið er í 10. sæti á þessum lista og þurfti „bara“ að borga meiddum mönnum 8,5 milljónir punda í laun tímabilið 2016-17. Hér fyrir neðan má sjá listann frá Bleacher Report yfir þau félög sem greiddu meiddum leikmönnum mestan pening á síðustu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin Handbolti Í beinni: Real Sociedad - Barcelona | Án Orra reyna þeir að skáka Börsungum Fótbolti EM í dag: Stóra Hauks Þrastar leiknum fagnað með pylsuveislu Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Fleiri fréttir Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Sjá meira