Schneiderlin á leið inn í hlýjuna hjá Koeman Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2017 09:45 Morgan Schneiderlin ræðir við Wayne Rooney. vísir/getty
Morgan Schneiderlin hefur verið í frystiklefanum hjá Manchester United undir stjórn Jose Mourinho en nú virðist horfa til betri vegar hjá franska miðjumanninum. United hefur samþykkt tilboð frá Everton í Schneiderlin en það nemur 22 milljónum punda, jafnvirði rúmra þriggja milljarða króna. Schneiderlin hefur aðeins spilað í ellefu mínútur í ensku úrvalsdeildinni í vetur en þó hafnaði United fyrra tilboði Everton í kappann. Viðræður hafa haldið áfram síðustu daga og aðilar náðu saman. Kaupverðið mun hækka um tvær milljónir punda, 280 milljónir króna, ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt en United greiddi einmitt Southampton 24 milljónir punda fyrir hann í júlí 2015. Sjá einnig: Tilboði West Brom í Schneiderlin hafnað Koeman var stjóri Southampton þegar Schneiderlin var seldur til Manchester United eftir frábært gengi með fyrrnefnda liðinu. Miðjumaðurinn öflugi snýr því aftur til Koeman nú. Jose Mourinho, stjóri United, sagði eftir leikinn gegn Hull í gær að kaupin væru komin vel á veg. „Þetta er leitt því mér líkar vel við hann og hann hefði getað nýst okkur á löngu tímabili. En ég er ánægður fyrir hans hönd því þetta er það sam hann vill. Hann vill spila hvern leik og vera mikilvægur leikmaður í liðinu,“ sagði Mourinho. „Ég er ánægður fyrir hönd góðs atvinnumanns en ég ef ekkert nema gott um hann að segja.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Koeman hefur áhuga á United-tvíeykinu sem er í kuldanum hjá Mourinho Ronald Koeman hefur áhuga á að fá Morgan Schneiderlin og Memphis Depay, leikmenn Manchester United, til Everton í janúarglugganum. 15. desember 2016 18:00 West Brom búið að bjóða í Schneiderlin Frakkinn hefur aðeins spilað í ellefu mínútur með Manchester United í deildinni í vetur. 23. desember 2016 13:00 Tilboði West Brom í Schneiderlin hafnað Manchester United hafnaði tilboði West Brom í franska miðjumanninn Morgan Schneiderlin. 30. desember 2016 20:30 Mest lesið Magnús Eyjólfsson er látinn Sport Uppgjör: Breiðablik - Virtus 2-1 | Blikar fara út með bara eitt mark í forskot Fótbolti Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti Wirtz strax kominn á hættusvæði Enski boltinn Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Enski boltinn „Magnað að við séum enn að leita í vinskap hvors annars“ Handbolti Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Enski boltinn Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Enski boltinn Féll fimm metra við að fagna marki Fótbolti Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Körfubolti Fleiri fréttir Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz „Skilyrði félagsins fyrir sölu hafa ekki verið uppfyllt“ Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Liverpool búið að selja leikmenn fyrir meira en 33 milljarða í sumar Pep Guardiola hjálpar Ten Hag Isak rýfur þögnina og segir Newcastle hafa svikið loforð Völdu Mo Salah bestan en Chris Wood frekar en Haaland í lið ársins Sóla ekki skemmt yfir Owen-treyju: „Vil ekki sjá hana“ Eze fari til Spurs fyrir vikulok Sjáðu mark Chiesa frá öllum vinklum og öll hin mörkin Isak skrópar á verðlaunahátíð Úlfarnir kaupa hraðasta leikmann Ítalíu Klárlega búið að vanmeta Man. City Chiesa núna ákveðinn í að vera áfram hjá Liverpool Fyrrum leikmaður Sir Alex er prestur Sjá meira
Koeman hefur áhuga á United-tvíeykinu sem er í kuldanum hjá Mourinho Ronald Koeman hefur áhuga á að fá Morgan Schneiderlin og Memphis Depay, leikmenn Manchester United, til Everton í janúarglugganum. 15. desember 2016 18:00
West Brom búið að bjóða í Schneiderlin Frakkinn hefur aðeins spilað í ellefu mínútur með Manchester United í deildinni í vetur. 23. desember 2016 13:00
Tilboði West Brom í Schneiderlin hafnað Manchester United hafnaði tilboði West Brom í franska miðjumanninn Morgan Schneiderlin. 30. desember 2016 20:30