Kane orðinn markahæstur og Tottenham fimm stigum frá toppnum | Sjáðu mörkin Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. mars 2016 17:45 Harry Kane skorar fyrsta mark leiksins. vísir/getty
Tottenham vann öruggan sigur á nýliðum Bournemouth, 3-0, í 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Sigurinn var, eins og tölurnar gefa til kynna, aldrei í hættu. Heimamenn komust yfir eftir aðeins 44 sekúndur þegar Harry Kane skoraði sitt 20. mark á leiktíðinni eftir fyrirgjöf frá hægri. Hann varð með markinu sá markahæsti í úrvalsdeildinni. Kane bætti um betur fimmtán mínútum síðar þegar hann skoraði annað mark sitt og annað mark Tottenham, 2-0. Dele Alli gaf boltann inn á teiginn þar sem Kane kláraði færið sitt vel en samstarf þeirra hefur verið magnað á tímabilinu. Kane er nú búinn að skora 21 mark í ensku úrvalsdeildinni og er á toppi markalistans, tveimur á undan Jamie Vardy og þremur mörkum á undan Romelu Lukaku sem er búinn að skora 18 mörk. Vardy og Lukaku eru reyndar duglegri að búa til mörk fyrir aðra. Vardy er með 19 mörk og sex stoðsendingar og hefur því í heildina komið að 25 mörkum og Lukaku er með sex stoðsendingur og hefur því komið í heildina að 24 mörkum. Kane er aðeins með eina stoðsendingu en 21 mark. Ekki slæmt. Veik von Bournemouth um að snúa gangi mála við í seinni hálfleik dó eftir aðeins sjö mínútur þegar Christian Eriksen kom Tottenham í 3-0 á 52. mínútu. Meira var ekki skorað í leiknum og sannfærandi sigur Tottenham í höfn. Tottenham er eftir sigurinn með 61 stig í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði Leicester þegar bæði lið eiga sjö leiki eftir. Bournemouth er í þrettánda sæti með 38 stig, þrettán stigum frá falli.Harry Kane kemur Tottenham í 1-0: Harry Kane kemur Tottenham í 2-0: Christian Eriksen kemur Tottenham í 3-0:
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1| Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira