Enska sambandið hunsaði áhyggjur vegna kynferðisofbeldis Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. desember 2016 08:30 Mynd tengist efni fréttar ekki beint. vísir/getty
Forráðamenn enska knattspyrnusambandsins eru sagðir hafa brugðist kaldranalega við þegar kynferðisofbeldið sem nú skekur enska boltann kom fyrst upp á borðið í byrjun tíunda áratugs síðustu aldar.Frá þessu er greint á vef BBC en maður að nafni Ian Ackley, sem var beittur kynferðisofbeldi af manni tengdur Manchester City, segir að enska sambandið hafi ekki einu sinni hlustað á ítrekaðar beiðnir föður hans um að verja börn og unglinga betur gegn mögulegum kynferðisofbeldismönnum.Sjá einnig:Hvað hefur gerst í kynferðisofbeldismálinu á Englandi? BBC hefur bréf föður hans undir höndunum en í þeim virðist sem svo að enska knattspyrnusambandið hafi verið að bíða eftir breytingu á lögum í landinu áður en það uppfærði sína stefnu í barnavernd. Enska sambandið er farið af stað með ítarlega rannsókn á því sem gerðist á þessum tíma en allt fór þetta af stað þegar Andy Woodward, fyrrverandi varnarmaður Crewe, steig fram og opinberaði að hann hefði verið kynferðislega misnotaður er hann var táningur í fótbolta. Árið 1997 sýndi Channel 4 í Bretlandi heimildamynd um kynferðisofbeldi í grasrót enska boltans en Ackley var einn strákanna sem steig fram þar. Eftir að þátturinn var birtur sendir faðir hans tugi handskrifaðra bréfa til enska sambandsins sem gerði ekkert í málinu, að sögn Ackley.Sjá einnig:Var nuddaður nakinn sem unglingur af manni sem var ákærður fyrir kynferðisofbeldi „Ekki bara var ég beittur kynferðislegu ofbeldi heldur voru ég, faðir minn og Channel 4 hunsaðir þegar við reyndum að berja hátt í trommuna á sínum tíma og láta vita af þessu,“ segir Ian Ackley.
Enski boltinn Tengdar fréttir Var nuddaður nakinn sem unglingur af manni sem var ákærður fyrir kynferðisofbeldi Matthew Le Tissier er frægasti fótboltamaðurinn sem hefur talað opinberlega um kynferðisofbeldið í enska boltanum. 7. desember 2016 09:00 Mest lesið Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Fótbolti „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Handbolti Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn Dagskráin í dag: Brjálað að gera í Bestu deildinni Sport Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Enski boltinn Fleiri fréttir Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham Sjá meira
Var nuddaður nakinn sem unglingur af manni sem var ákærður fyrir kynferðisofbeldi Matthew Le Tissier er frægasti fótboltamaðurinn sem hefur talað opinberlega um kynferðisofbeldið í enska boltanum. 7. desember 2016 09:00