Fjögur ár frá félagsskiptunum sem breyttu svo miklu fyrir Leicester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2016 12:30 Jamie Vardy með Englandsbikarinn og fjölskylduna. Vísir/Getty
18. maí 2012 keypti Leicester City leikmann frá utandeildarfélaginu Fleetwood Town en enginn gat séð fyrir hvaða þýðingu þessi félagsskipti hafa haft fyrir framtíð Leicester. Leicester City borgaði Fleetwood Town eina milljón punda fyrir Jamie Vardy sem var metupphæð fyrir leikmann úr ensku utandeildinni. Það höfðu margir efasemdir um kaupin fyrir fjórum árum en þessi fjárfesting hefur heldur betur borgað sig margfalt fyrir Leicester City. „Ég settist niður með Nigel og eftir það var ljóst að hingað vildi ég koma," sagði Jamie Vardy í viðtali við BBC Radio Leicester fyrir fjórum árum. Hann hafði skorað 31 mark í 36 leikjum fyrir á Fleetwood Town á tímabilinu og var klár í nýja áskorun. „Ég sá aðstöðuna og hugsaði með sjálfum mér: Ég get sé mig spila hér. Stjórinn vildi líka fá mig sem gerði ákvörðunina enn auðveldari," sagði Vardy. „Hann sagði mér að hann hefði verið að fylgjast með mér í nokkurn tíma. Ég náði athygli hans og ég hlýt því að hafa verið að gera eitthvað rétt," sagði Vardy í maí 2012. Jamie Vardy skoraði 20 mörk í 63 leikjum á tveimur tímabilum í ensku b-deildinni og 5 mörk í 34 leikjum á fyrsta tímabili sínu í ensku úrvalsdeildinni. Byrjunin var ekkert rosalega en svo small þetta allt saman hjá honum. Vardy sló síðan í gegn frá fyrsta leik á þessu tímabili, bætti met Ruud van Nistelrooy fyrir áramót með því að skora í ellefu leikjum í röð og endaði sem annar markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 24 mörk í 36 leikjum. Stóra málið er að hann var lykilmaðurinn á bak við það að Leicester City, sem rétt slapp frá falli tímabilið á undan, stóð uppi sem enskur meistari í fyrsta sinn. Leicester City vann ekki bara titilinn heldur vann hann örugglega. Jamie Vardy var kosinn leikmaður ársins af enskum fjölmiðlamönnum. Það hefur verið mikið um fögnuð hjá Leicester City að undanförnu en það er full ástæða til að halda upp á þennan mikilvæga dag í sögu félagsins.
Enski boltinn Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira