Enski boltinn

Lescott er viðbjóður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
McGrath er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Villa.
McGrath er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Villa. vísir/getty
Gamli harðjaxlinn Paul McGrath urðaði yfir Joleon Lescott, fyrirliða Aston Villa, eftir að Villa féll úr ensku úrvalsdeildinni.

McGrath sagði að Lescott hefði aðeins komið til félagsins til að fá pening. Sagði að hann væri viðbjóður og til skammar. McGrath hefur aldrei verið þekktur fyrir að gefa afslátt.

McGrath var þó ekki eini fyrrum leikmaður Villa sem sendi Lescott tóninn því það gerði Stan Collymore einnig.

Þeir höfðu verið að rífast á samfélagsmiðlum og á endanum bauð Collymore honum að koma í útvarpsþáttinn sinn og útskýra sitt mál.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×