Enski boltinn

Rashford sendi Villa niður | Sjáðu markið

Marcus Rashford sendi Aston Villa niður í B-deildina, en hann skoraði eina markið í 1-0 sigri Manchester United á Villa í dag.

Markið kom í fyrri hálfleik, en hann skoraði það á 32. mínútu eftir fyrirgjöf frá Antonio Valencia. Það reyndist eina mark leiksins.

Þetta var fjórða mark Rashford í ensku úrvalsdeildinni, en hann hefur komið sterkur inn í lið United á þessu tímabili. Wayne Rooney byrjaði sem fremsti maður hjá United eftir meiðsli.

United er í fimmta sætinu með 56 stig, stigi á eftir Manchester City sem er í fjórða sætinu. City á þó leik til góða.

Eftir þessi úrslit er ljóst að Villa er fallið í B-deildina í fyrsta sinn, en þeir hafa leikið í efstu deild frá stofnun hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×