Svona eru sigurlíkur Leicester í öllum leikjunum sem liðið á eftir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2016 22:30 Danny Drinkwater, Jamie Vardy, Danny Simpson og Riyad Mahrez fagna einu marka Leicester City á tímabilinu. Vísir/Getty
Leicester City er með fimm stiga forystu á Tottenham á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar aðeins sjö umferðir eru eftir. Bandaríski íþróttafjölmiðillinn ESPN hefur nú reiknað út líkurnar á því að Leicester verði enskur meistari í fyrsta sinn. Leicester City hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum með markatölunni 1-0 og liðið fær Southampton í heimsókn um helgina. Töluspekingar reiknuðu ekki aðeins líkurnar á meistaratitlinum heldur einnig líkurnar á sigri í þeim sjö leikjum sem Leicester-liðið á eftir. Erfiðustu leikir Leicester í síðustu sjö umferðunum verða samkvæmt þessu leikir liðsins á Old Trafford (27 prósent sigurlíkur) og Stamford Bridge (24 prósent sigurlíkur). Leicster City er reyndar með aðeins meira en fimmtíu prósent sigurlíkur í tveimur leikjum eða á heimavelli á móti West Ham (51 prósent líkur á sigri Leicester) og Swansea (59 prósent). Lecester vantar 17 stig í viðbót til að tryggja sér titilinn en það er 21 stig eftir í pottinum. Leicester City er öruggt með að lenda í einu af þremur efstu sætunum en sjö önnur lið eiga möguleika á Meistaradeildarsæti. Það eru Tottenham (98 prósent líkur), Arsenal (93 prósent), Manchester City(56 prósent), Manchester United (30 prósent), West Ham (17 prósent), Liverpool (3 prósent) og Southampton (1 prósent).Sigurlíkur Leicester City í síðustu sjö leikjunum: Heima á móti Southampton - 47 prósent Úti á móti Sunderland - 44 prósent Heima á móti West Ham - 51 prósent Heima á móti Swansea - 59 prósent Úti á móti Manchester United - 27 prósent Heima á móti Everton - 49 prósent Úti á móti Chelsea - 24 prósentLíkur á liðin verði Englandsmeistari 2016: Leicester City 77,9 prósent Tottenham 17 prósent Arsenal 4,7 prósent Manchester City 0,3 prósent Það er hægt að sjá alla samantekt ESPN með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira