Enginn verri fyrir framan markið en Memphis Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. apríl 2016 12:00 Memphis Depay hefur átt erfiðan vetur á Englandi. vísir/getty
Það er óhætt að segja að fyrsti vetur hollenska framherjans Memphis Depay á Englandi hafi ekki verið góður. Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur verið langt frá því að standa undir væntingum. Memphis kvaddi hollensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð sem meistari með PSV, markahæsti leikmaður deildarinnar og besti ungi leikmaðurinn, en hann skoraði einnig úr aukaspyrnum eins og þær væru vítaspyrnur. Memphis er aðeins búinn að skora tvö mörk í ensku úrvalsdeildinni í 23 leikjum, en hann er aðeins búinn að byrja fjórtán leiki eftir að Louis van Gaal tók hann úr liðinu. Hann er í heildina búinn að skora sjö mörk í 39 leikjum í öllum keppnum. Þessi annars sparkvissi leikmaður er lang slakasta skyttan í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð samkvæmt tölfræðivefnum Whoscored.com, en hann hefur tekið saman tíu verstu skotmennina. Lágmarkið er að hafa skotið 30 sinnum að marki.Alexis Sánchez þarf að miða betur.vísir/gettyTvö mörk úr 47 tilraunum gerir 4,3 prósent skotnýtingu sem er sú versta af öllum í deildinni. Í öðru sæti er Suður-Kóreumaðurinn Heung-Min Son með 6,7 prósent skotnýtingu og Wilfried Bony hjá Manchester City er ekki að nýta færin sín með 7,3 prósent nýtingu á sínum skotum. Á eftir þeim koma svo leikmenn á borð við Fabio Borini, Cameron Jerome og Rudy Gestede, en í níunda sæti er nokkuð óvænt nafn; Alexis Sánchez. Sílemaðurinn, sem byrjaði leiktíðina svo vel, er búinn að skora átta mörk í ensku úrvalsdeildinni en skotnýting hans er aðeins 9,5 prósent. Jordan Ayew hjá Aston Villa er í tíunda sætinu með 9,4 prósent. Þegar litið er til bestu skotmannanna þá trónir Jermaine Defoe, framherji Sunderland, á toppnum með 21,9 prósent skotnýtingu og Riyad Mahrez, leikmaður toppliðs Leicester, er í öðru sæti með 20,5 prósent skotnýtingu.Fimm bestu: Jermaine Defoe, Sunderland - 21,9 prósent Riyad Mahrez, Leicester - 20,5 prósent Jamie Vardy, Leicester - 19,6 prósent Georginio Wijnaldum, Newcastle - 19,6 prósent Diego Costa, Chelsea - 18,3 prósentFimm verstu: Memphis Depay, Manchester United - 4,3 prósent Heung-Min Son, Tottenham - 6,7 prósent Wilfried Bony, Manchester City - 7,3 prósent Fabio Borini, Sunderland - 8,1 prósent Cameron Jerome, Norwich - 8,3 prósent
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Sjá meira