„Dele Alli getur orðið tíu sinnum betri en hann er í dag“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. mars 2016 10:30 Dele Alli spilaði í B-deildinni fyrir ári en spilaði landsleiki gegn Þýskalandi og Hollandi á síðustu dögum. vísir/getty
James Milner, leikmaður Liverpool og enska landsliðsins í fótbolta, telur að samherji sinn í landsliðinu, Dele Alli, geti orðið tíu sinnum betri en hann er í dag en nú þurfa allir að standa saman og taka smá pressu af honum. Alli, sem er aðeins 19 ára gamall, hefur spilað stórkostlega fyrir Tottenham í ensku úrvaldeildinni en Lundúnarliðið er í harðri baráttu við Leicester um Englandsmeistaratitilinn þegar sjö umferðir eru eftir. Þessi hæfileikaríki táningur var að spila með MK Dons í B-deildinni fyrir einu ári síðan en er nú búinn að spila sex landsleiki og spilaði eins og kóngur í glæsilegum 3-2 útsigri Englands gegn heimsmeisturum Þýskalands um helgina. Það er fátt sem kemur í veg fyrir að Dele Alli verði í byrjunarliði enska liðsins þegar það mætir Rússlands í fyrsta leik liðsins á EM ellefta júní. „Magnaður,“ var orðið sem James Milner notaði til að lýsa Alli í landsleikjunum tveimur gegn Þýskalandi og Hollandi. „Skrefin fram á við sem hann tekur frá viku til viku eru mögnuð og það sést á þessari frammistöðu hans.“ „Nú þurfum við að passa okkur samt og hlaða ekki of mikilli pressu á hann. Við vitum hversu góður hann getur orðið en við höfum séð of mikla pressu fara með góða unga stráka. Nú þarf hann bara fá að hugsa um að spila fótbolta.“ „Þó Alli sé góður núna getur hann orðið tíu sinnum betri og hann verður það. Hann er með frábært viðhorf og er alltaf að reyna að bæta sig. Við verðum bara saman að reyna að taka sviðsljósið aðeins af honum og leyfa honum að bæta sig og þróast,“ segir James Milner.
Enski boltinn Mest lesið Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjá meira