Leik lokið: Aston Villa - Chelsea 0-4 | Sjáðu fyrsta mark Pato fyrir Chelsea 2. apríl 2016 00:01
Ensku meistararnir í Chelsea áttu ekki í nokkrum vandræðum með að leggja arfaslakt lið Aston Villa af velli á Villa Park í Birmingham. Lokatölur urðu 4-0. Þetta byrjaði þó ekki gæfulega hjá Chelsea því Frakkinn Loic Remy þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla á 23. mínútu. Í hans stað kom Brasilíumaðurinn Alexandre Pato en hann var að leika sinn fyrsta leik í búningi Chelsea. Ruben Loftus-Cheek kom Chelsea þó yfir aðeins þremur mínútum síðar og Alexandre Pato skoraði sitt fyrsta mark fyrir Chelsea á síðustu mínútu fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu. Síðari hálfleikur var varla byrjaður þegar Pedro Rodriguez skoraði þriðja mark Chelsea og hann rak svo síðasta naglann í kistu Aston Villa þegar hann skoraði fjórða mark Chelsea á 59. mínútu. Ekki batnaði staða Aston Villa þegar Alan Hutton fékk að líta sitt annað gula spjald á 85. mínútu og fékk að fara á undan samherjum sínum í sturtu. Chelsea hefur ekki tapað í fimmtán deildarleikjum sínum undir stjórn Hollendingsins Guus Hiddink og liðið er búið að vinna fimm af síðustu sex útileikjum sínum. Remi Garde hætti sem knattspyrnustjóri Aston Villa í vikunni og ekki var að sjá að Eric Black hafi tekist að blása neinu lífi í andlaust lið Aston Villa fyrir þennan leik. Chelsea fór með þessum sigri upp fyrir Liverpool í 9. sæti deildarinnar en Aston Villa situr sem fyrr í neðsta sæti deildarinnar, með aðeins 3 sigurleiki á þessari leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Enski boltinn Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Sjá meira