Herrera: Hef aldrei séð eftir ákvörðun minni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. mars 2015 08:45 Ander Herrera ásamt Juan Mata. Vísir/Getty
Miðjumaðurinn Ander Herrera segir að hann hafi aldrei efast um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá sér að ganga til liðs við Manchester United í sumar. Herrera gekk í raðir United frá Athletic Bilbao í sumar fyrir 29 milljónir punda og þó svo að hann hafi staðið sig vel á undirbúningstímabilinu gekk honum illa að festa sig í sessi þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni hófst. Hann hefur þó haldið byrjunarliði sínu í liði United í síðustu sjö leikjum þess í öllum keppnum. „Manchester United er næstríkasta félag heims og þeir eru sífellt að leita að hæfileikaríkum leikmönnum. Það þurfa allir tíma til að aðlagast,“ sagði Herrera í viðtali við spænska fjölmiðla. „Nú er ég að spila meira en ég gerði áður en ég vissi þegar ég kom að hingað væri ég kominn til að spila í fimm ár - ekki bara í nokkra mánuði,“ bætti hinn 25 ára Herrera við. Spánverjinn kemur víða við í viðtalinu og segir að það sé minni stéttaskipting í liðinu eftir að menn eins og Paul Scholes, Ryan Giggs og Rio Ferdinand eru hættir. Þá segir hann að Wayne Rooney sé brandarakallinn í hópnum. „Rooney er afar opinn og blótar okkur alltaf á spænsku,“ sagði Herrera sem segist halda sig fjarri stjóranum Louis van Gaal þegar hann getur. „En hann er góður maður með sterka og mikla skapgerð. Hann er hrifinn af aga og trúir ekki á leikmenn sem eru með stórt egó.“ Herrera var einnig spurður hvenær hann hafi síðast grátið. „Síðast? Ég grét næstum því við það að sjá Lionel Messi spila gegn Manchester City. Hann er svo góður. En verð líka auðveldlega meyr.“
Enski boltinn Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Golf Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Sjá meira