Erlent

Norður-Kórea dregur heimboð Ban Ki-moon til baka

Atli Ísleifsson skrifar
Ban Ki-moon er nú í heimsókn í heimalandi sínu Suður-Kóreu.
Ban Ki-moon er nú í heimsókn í heimalandi sínu Suður-Kóreu. Vísir/AFP
Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur greint frá því að stjórnvöld í Norður-Kóreu hafi dregið til baka boð um að hann fengi að heimsækja iðnaðarsvæðið Keasong í landinu. Ban er nú í heimsókn í heimalandi sínu, Suður-Kóreu.

Ban greindi frá þessu á Twitter í gær og segir hann enga ástæðu hafa verið gefna. Segir hann þykja það miður og að hann muni áfram þrýsta á Norður-Kóreustjórn að vinna að friði á Kóreuskaganum.

Kaesong er í suðurhluta Norður-Kóreu, nærri landamærunum að Suður-Kóreu, og var stofnað 2004. Um 125 suður-kóresk fyrirtæki eru með starfsemi á svæðinu og starfa þar um 50 þúsund Norður-Kóreumenn.

Keasong er samstarfsverkefni ríkjanna sem enn eiga formlega í stríði, þar sem aldrei var ritað undur friðarsamning eftir að vopnahlé tók gildi árið 1953.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×