Raheem Sterling er umtalaðasti knattspyrnumaður Bretlands þessa dagana. Samningsmál hans hjá Liverpool eru eldfim og hefur félagið nú hafnað tveimur tilboðum frá Manchester City í kappann.
Fyrr í vetur komst Sterling í fréttirnar ef myndefni birtist af honum þar sem hann virtist hafa fallið í yfirlið eftir að hafa andað að sér hláturgasi.
Honum var ekki refsað fyrir athæfið enda ekki um ólöglegt efni að ræða. Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, áminnti hins vegar kappann og minnti hann á ábyrgðarhlutverk sitt sem íþróttamaður í fremstur röð og fyrirmynd.
Þessi föðurlega ræða virðist hins vegar haft takmörkuð áhrif á Sterling því nú í morgun birti The Sun, götublaðið enska, frétt sem sýnir að Sterling var nýlega í veislu með vinum sem virðast vera að anda að sér hláturgasi.
Svo virðist sem að myndefnið hafi verið tekið upp á Ibiza þar sem Sterling var í fríi eftir landsleik Englands gegn Slóveníu um helgina. Það sést þó ekki til Sterling að anda að sér efninu en myndefnið gæti verið nóg til að reita forráðamenn Liverpool og Rodgers til reiði.
Sterling í öðru hláturgasmyndbandi

Tengdar fréttir

Liverpool mun hafna öðru tilboði frá City
City hækkaði sig um fimmtán milljónir punda í gær en Liverpool ætlar að segja nei.

Sterling í vanda | Féll í yfirlið eftir hláturgas
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, mun ræða við Raheem Sterling sem skoraði fyrir lið sitt í kvöld.

Sterling og Ibe fengu aðvörun
Leikmennirnir ungu fengu tiltal frá knattspyrnustjóra Liverpool í dag.

Carragher um vandræði Sterling: Ég gerði líka mistök á hans aldri
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og nýverandi knattspyrnuspekingur hjá Sky Sports, hefur ekki áhyggjur af Raheem Sterling sem hefur enn á ný komið nafni sínu í óheppilegu fyrirsagnirnar.

Man City hækkaði tilboð sitt í Raheem Sterling
Manchester City hefur sent Liverpool nýtt tilboð í enska landsliðsmanninn Raheem Sterling samkvæmt frétt á BBC og er nú tilbúið að borga 35,5 milljónir punda fyrir þennan tvítuga leikmann.

Liverpool hafnaði boði City í Sterling
City bauð rúma fimm milljarða króna í Raheem Sterling sem neitaði á sínum tíma samningstilboði Liverpool.