Carragher um vandræði Sterling: Ég gerði líka mistök á hans aldri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2015 08:30 Raheem Sterling. Vísir/Getty
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og nýverandi knattspyrnuspekingur hjá Sky Sports, hefur ekki áhyggjur af Raheem Sterling sem hefur enn á ný komið nafni sínu í óheppilegu fyrirsagnirnar.Enska blaðið The Sun birti í gærkvöldi myndir af Sterling sem virðast sýna að hann hafi fallið í yfirlið eftir að hafa tekið inn hláturgas. Sterling lét áður mynda sig við að reykja vatnspípu en hann hefur einnig verið mikið í umfjöllun fjölmiðla eftir að hann hafnaði samningstilboði Liverpool sem bauð honum 100 þúsund pund í vikulaun. Raheem Sterling skoraði fyrra mark Liverpool-liðsins í 2-0 sigri á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. „Ég held að hann eigi eftir að eiga langan og farsælan feril. Hann er efni í súperleikmann og við höfðum séð merki þess bæði með Liverpool og enska landsliðinu," sagði Jamie Carragher. „Það er ekki vafi í mínum huga að eftir nokkur ár mun hann líta á síðustu sex til tólf mánuði sem mjög lærdómsríkan tíma," sagði Carragher. „Það gera allir mistök á þessum aldri. Ég gerði líka mistök svona ungur en það sem er mikilvægast er að menn læri af þeim. Raheem Sterling þarf að vera á baksíðunum (íþróttaumfjöllun bresku blaðanna) en ekki forsíðunum," sagði Carragher. „Það hefur verið vandamálið hjá honum síðustu mánuði en vonandi lærir hann af þessu. Hann er efni í mjög góðan leikmann," sagði Carragher. „Hann er einn af bestu sóknarmönnum Liverpool. Gleymdu samningum og peningum. Besta leiðin til að sanna virði sitt er að spila vel. Ekki segja fólki hversu góður þú ert, sýndu þeim það," sagði Carragher.
Enski boltinn Mest lesið Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Sjá meira