Tilraunin Rodgers fullkomnuð gegn United? Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. mars 2015 06:00 Liverpool hefur ekki tapað leik síðan það steinlá gegn Manchester United á Old Trafford fyrir þrettán umferðum. Fréttablaðið/Getty
Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta fer fram á Anfield á morgun klukkan 13.30 þegar erkifjendurnir Liverpool og Manchester United mætast. Með sigri kemst Liverpool upp fyrir United í fjórða sæti deildarinnar, en tveimur stigum munar á liðunum fyrir leikinn. Þetta er mjög athyglivert í ljósi stöðu liðanna þegar þau mættust fyrir þrettán umferðum síðan. Þá vann United öruggan 3-0 sigur sem markaði vissan lágpunkt fyrir Liverpool-liðið. Það var þá að tapa fjórða leiknum af síðustu sjö í deildinni og var með 21 stig í tíunda sæti. Sagan var allt önnur hjá lærisveinum Louis van Gaal á þeim tíma. Sigurinn á Liverpool var sá sjötti í röð í deildinni og flaug liðið hátt í þriðja sæti með 31 stig, tíu stigum meira en erkifjendurnir í Liverpool sem voru ekki í umræðunni um Meistaradeildarsæti. Tapið á Old Trafford voru þó viss tímamót hjá Liverpool-liðinu og reyndar frekar stór. Brendan Rodgers mætti þar til leiks með 3-4-3-kerfið sem gekk ekki upp í Manchester en hefur svínvirkað síðan þá. Síðan Liverpool tapaði fyrir United á Old Trafford hefur liðið unnið tíu leiki af þrettán í deildinni, gert þrjú jafntefli og ekki tapað einum einasta. Það hefur innbyrt flest stig allra liða yfir þessa þrettán leiki eða 33 talsins. Liverpool er einfaldlega besta liðið á Englandi í síðustu þrettán leikjum. Nú er sagan önnur en var þá hjá United. Eftir sigurinn á Liverpool er liðið vissulega búið að vinna sjö leiki, þar af þrjá síðustu, en það er einnig búið að gera fjögur jafntefli og tapa tveimur. United er í fimmta sæti yfir stigasöfnun í síðustu þrettán umferðum með 25 stig, átta stigum minna en Liverpool. Liverpool var ekkert alslæmt í 3-0 tapinu á Old Trafford. Eins og svo oft áður dró David De Gea United-menn að landi með frábærri frammistöðu, en nú fáum við að sjá svart á hvítu hvert Liverpool-liðið er komið með nýja kerfið hans Brendans Rodgers að vopni.
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira