Kominn til að vera en var látinn fara Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. desember 2015 07:00 Jose Mourinho er horfinn á braut. vísir/getty
José Mourinho var rekinn öðru sinni frá Chelsea á fimmtudaginn. Eftir níu tapleiki í ensku úrvalsdeildinni og þá staðreynd að ríkjandi meistararnir eru í 16. sæti með aðeins 15 stig gafst Roman Abramovich, eigandi félagsins, upp og rak sinn uppáhaldsmann. Endurkoma Mourinhos gekk fullkomlega fyrstu tvö tímabilin en fyrri hluti þessa vetrar var katastrófa frá fyrsta leik þegar hann gagnrýndi lækninn Evu Carneiro með þeim afleiðingum að hún hætti. Eins og stundum áður missti Mourinho klefann en leikmenn sem spiluðu eins og algjörar hetjur á síðasta tímabili virðast ekki hafa nokkurn áhuga á að spila fyrir Portúgalann í ár. „Svo virtist vera að það hafi verið áþreifanlegur ágreiningur á milli Mourinhos og leikmannanna. Við töldum að það væri tímabært að grípa til aðgerða,“ sagði Michael Emanalo, yfirmaður tæknimála hjá Chelsea, um brottreksturinn því auðvitað tjáir Abramovich sig ekkert frekar en fyrri daginn.Úr hetju í skúrk Stuðningsmenn Chelsea réðu sér vart fyrir kæti þegar José Mourinho var endurráðinn knattspyrnustjóri félagsins sumarið 2013. Hann eyddi reyndar fyrsta tímabilinu í að tala liðið niður og sagði það ekki geta orðið meistara en lofaði Englandsmeistaratitlinum 2015. Það gekk allt upp. Nú, aðeins rétt rúmu hálfu ári síðar, er hetjan á Brúnni orðin skúrkurinn enda liðið búið að tapa níu leikjum í ensku úrvalsdeildinni og er aðeins tveimur stigum frá falli en fimmtán stigum frá sæti í Meistaradeildinni. Svo virðist sem eini möguleiki Chelsea á að komast í Meistaradeildina að ári sé að vinna hana á þessu ári. Til að setja þessi níu töp í samhengi þá tapaði Mourinho aðeins tíu leikjum í heild sinni í fyrri stjóratíð sinni hjá Chelsea sem var rétt rúm þrjú tímabil. Hann tapaði svo bara átta leikjum með Inter og aðeins ellefu á þremur árum í deild með Real Madrid.Læknirinn út Mourinho hefur verið að sumu leyti stórfurðulegur á þessu tímabili og blaðamannafundirnir skrítnari en oft áður. Þó mjög skemmtilegir eins og vanalega þegar Mourinho á hlut að máli. Vitleysan á þessu tímabili hófst strax í fyrsta leik þar sem liðið gerði jafntefli við Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Swansea. Undir lok leiksins stökk læknirinn Eva Carneiro inn á völlinn í „leyfisleysi“ af hálfu Mourinhos til að hlúa að Eden Hazard. Chelsea var þá þegar búið að missa mann af velli og var að verja stigið. Þar sem Carneiro fór inn á þurfti Hazard að fylgja henni út af og þar með voru Chelsea-menn níu inni á vellinum um stund. Mourinho trompaðist og gagnrýndi Carneiro opinberlega. Hann tók hana úr starfsliðinu á leikdegi og lét hana dúsa á æfingasvæðinu áður en hún gafst upp, hætti og kærði Chelsea. Málið verður tekið fyrir á næsta ári og gæti farið svo að Chelsea þurfi að greiða Evu miskabætur.Þetta var erfitt tímabil fyrir Portúgalann.vísir/gettyÁbyrgð leikmanna? Mourinho á oft í miklu haltu mér slepptu mér sambandi við leikmenn sína. Þeir annaðhvort elska hann og væru til í að brjóta skothelt gler með höfðinu fyrir Portúgalann eða hafa nákvæmlega engan áhuga á að spila fyrir hann. Þegar Mourinho var látinn fara í fyrra skiptið frá Chelsea var mikið skrifað og skrafað um að kóngarnir í Chelsea í þá daga, Frank Lampard og John Terry, hefðu talað hann úr starfi. Þeir voru svo sagðir hafa gert það nokkrum sinnum í viðbót enda stjóraskiptin ansi tíð hjá liðinu. Mourinho lenti í svipuðu veseni hjá Real Madrid þar sem hann móðgaði nokkra kónga og var algjörlega búinn að missa klefann. Nú eru leikmenn eins og Eden Hazard (besti leikmaður síðasta tímabils), Cesc Fábregas (sem bætti eigið stoðsendingamet í fyrra) og Nemanja Matic (besti varnarsinnaði miðjumaður síðasta tímabils) að spila eins og þeir kunni ekki fótbolta. Augljóslega urðu þeir ekki verri leikmenn á einni nóttu. Þetta er ekki Space Jam. Yfirmaður tæknimála hjá Chelsea væri ekki að tjá sig opinberlega um ágreining milli leikmanna og Mourinhos nema þeir væru búnir að kvarta í yfirvaldið. Eins og svo oft áður þurfa leikmenn ekki að sýna neina ábyrgð því auðveldara er að reka einn mann en heilt lið. Og það þurfti Mourinho að upplifa aftur hjá sama liðinu. José Mourino ætlaði að búa um sig á Brúnni að þessu sinni og vildi vera að minnsta kosti í áratug hjá Chelsea. Hann var kominn til að vera, en eins og með þá flesta hjá Chelsea var hann látinn fara.
Enski boltinn Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Golf Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Fleiri fréttir Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Sjá meira