Enski boltinn

Mourinho fékk bæði leikbann og milljóna sekt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho. Vísir/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var í kvöld dæmdur í eins leiks bann fyrir framkomu sína gagnvart dómara í leik Chelsea og West Ham á dögunum.

Jose Mourinho má því ekki stýra liði Chelsea á móti Stoke City í kvöldleik laugardagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu enska knattspyrnusambandsins.

Mourinho fær ekki aðeins leikbann því hann þarf einnig að greiða 40 þúsund punda sekt sem gerir rétt tæplega átta milljónir íslenskra króna.

Mourinho var rekinn upp í stúku fyrir að láta dómarann Jon Moss heyra það í hálfleik þegar hann óð að honum í kringum búningsklefa dómaranna á Upton Park.

Mourinho hafði verið settur í skilorðsbundið bann fyrir ummæli sín eftir leik á móti Southampton 3. október síðastliðinn.

Chelsea hefur tapað sex af ellefu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og datt út úr enska deildabikarnum í síðustu viku.

Sæti Jose Mourinho er farið að hitna mikið en hann hefur þó sjálfur ekki áhyggjur af því að vera rekinn.

Hann gerði Chelsea-liðið að enskum meisturum í þriðja sinn síðasta vor en nú lítur út fyrir að Chelsea verði ekki í Meistaradeildinni tímabilið 2016-17. Til að svo verði þarf mikið að breytast á Brúni.


Tengdar fréttir

Mourinho: Ég hef ekkert að segja

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var afar stuttorður eftir 1-3 tap Englandsmeistaranna fyrir Liverpool í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×