Enski boltinn

Mourinho: Ég hef ekkert að segja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mourinho var þungt hugsi á bekknum í dag.
Mourinho var þungt hugsi á bekknum í dag. vísir/getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var afar stuttorður eftir 1-3 tap Englandsmeistaranna fyrir Liverpool í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég hef ekkert að segja,“ endurtók Mourinho í sífellu.

„Því miður hef ég ekkert að segja. Stuðningsmennirnir eru ekki heimskir. Ég hef ekki áhyggjur,“ sagði Mourinho aðspurður um framtíð sína hjá Chelsea sem er í mikilli óvissu.

Chelsea hefur tapað sex af fyrstu 11 leikjum sínum og situr í 15. sæti deildarinnar en liðið tapaði aðeins þremur af 38 deildarleikjum sínum á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×