Gylfi: Frábær sigur fyrir liðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2015 08:30 Gylfi Þór Sigurðsson og Ki Sung-Yeung eftir leik. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði frábært mark beint úr aukaspyrnu í endurkomusigri Swansea City á útivelli á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Aston Villa komst yfir í leiknum en Gylfi kom Swansea inn í leikinn með aukaspyrnumarki sínu áður en André Ayew tryggði Swansea öll þrjú stigin með því að skora sigurmarkið. „Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur ekki síst eftir að við lentum 1-0 undir," sagði Gylfi Þór Sigurðsson í viðtali við BBC. „Við sýndum karakter sem lið með því að vinna okkur inn í leikinn og ná síðan sigrinum í lokin," sagði Gylfi. Gylfi jafnaði metin á 68. mínútu en Jordan Ayew kom Villa liðinu yfir sex mínútum áður. „Við komum okkur aftur inn í leikinn með þessu aukaspyrnumarki og svo breyttum við aðeins leikskipulaginu eftir að Mo [Modou Barrow] kom inná. Hann gaf okkur mikinn hraða út á væng. Við héldum áfram og vissum að við myndum fá færi," sagði Gylfi. Sigurmark André Ayew kom þó ekki fyrr en þremur mínútum fyrir leikslok. „Þetta var frábært sigur fyrir okkur því síðustu vikur hafa verið erfiðar. Við höfum ekki verið að vinna leiki eða að fá mörg stig," sagði Gylfi. Þetta var fyrsti sigur Swansea-liðsins síðan að liðið vann Manchester United 30. ágúst síðastliðinn. „Við setjum pressu á okkur sjálfa og höfum sett okkur markmið á þessu tímabili sem við ætlum að ná. Auðvitað höfum við ekki verið ánægðir með frammistöðu undanfarna tvo mánuði," sagði Gylfi. Swansea var fyrir sigurinn á Aston Villa búið að spila fimm deildarleiki í röð án þess að vinna og hafði aðeins náð í tvö stig af fimmtán í boði. „Stundum spilar liðið ekki nógu vel en nær samt að vinna leikinn. Þetta snýst um að klára svoleiðis leiki og á meðan við vinnum eru allir ánægðir," sagði Gylfi. „Það hafa komið leikir hjá okkur þar sem við erum langt frá okkar besta en það eina sem við getum gert er að æfa vel og treysta því að þetta fari að detta fyrir okkur. Dagar eins og þessi á móti Aston Villa hjálpa upp á sjálfstraustið og vonandi getum við byggt ofan á þennan sigur," sagði Gylfi.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu stórbrotið mark Gylfa Þórs beint úr aukaspyrnu Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson skoraði magnað mark beint úr aukaspyrnu fyrir Swansea í dag í leik gegn Aston Villa. 24. október 2015 15:35 Mikilvægur sigur Swansea á Aston Villa | Gylfi steig upp Gylfi Þór Sigurðsson og félagar unnu frábæran sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikurinn fór 2-1 fyrir Swansea eftir að liðið hafði lent undir. 24. október 2015 13:30 Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira
Sjáðu stórbrotið mark Gylfa Þórs beint úr aukaspyrnu Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson skoraði magnað mark beint úr aukaspyrnu fyrir Swansea í dag í leik gegn Aston Villa. 24. október 2015 15:35
Mikilvægur sigur Swansea á Aston Villa | Gylfi steig upp Gylfi Þór Sigurðsson og félagar unnu frábæran sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikurinn fór 2-1 fyrir Swansea eftir að liðið hafði lent undir. 24. október 2015 13:30