Ólafur Páll: Gylfi er að reyna hluti sem eru of erfiðir Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. október 2015 16:00 „
Hann finnur kannski núna fyrir smá pressu enda er verið að tala um að hann sé ekki að skora og sé ekki að gera þá hluti sem hann á að gera. Það leiðir til þess að hann fer að reyna einhverja hluti sem eru of erfiðir,“ sagði Ólafur Páll Snorrason um landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson. Arnar Gunnlaugsson tók í sama streng og Ólafur. „Vandamálið að mér finnst er að Gylfi er að reyna að gera of mikið þessa dagana. Hann er að reyna að neyða eitthvað út úr sinni frammistöðu með því að hlaupa mikið sem gerir það að verkum að hann er oft ekki á réttum stað,“ sagði Arnar. Hjörvar Hafliðason, Arnar og Ólafur Páll gerðu upp 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Messunni í gær og ræddu meðal annars spilamennsku Gylfa undanfarnar vikur. „Gylfi þarf að vera á þeim stað á vellinum þar sem hann getur nýtt sér sendingargetu sína í löngu sendingunum en ekki þessum stuttu sendingum. Hann væri frábær á kantinum þar sem hann getur gefið fyrirgjafir eða aftar þar sem hann getur tekið lengri stungusendingar,“ sagði Ólafur en Gylfi hefur ekki tekið aukaspyrnur né hornspyrnur undanfarnar vikur. „Þetta hefur allt áhrif á sjálfstraustið því hans helsti styrkleiki eru spyrnurnar. Mér þykir það skrýtið að Gary Monk myndi ýta því að honum aftur til þess að auka sjálfstraustið. Hann er frábær spyrnumaður.“ Þá ræddu þeir hvar Gylfi Þór Sigurðsson væri á listanum yfir bestu knattspyrnumenn í sögu íslenskrar knattspyrnu ásamt því að ræða mikilvægi hans fyrir íslenska landsliðið en umræðuna má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira