Yfirmaður heilbrigðismála hjá FIFA kemur Evu Carneiro til varnar Kristinn Páll Teitsson skrifar 14. ágúst 2015 08:00 Eva hefur verið læknir Chelsea um árabil en hér ræðir hún við Diego Costa. Vísir/Getty
Yfirmaður heilbrigðismála hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA, hefur komið Evu Carneiro til varnar en hún hefur verið töluvert í umræðunni undanfarna daga eftir að Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, húðskammaði læknislið sitt fyrir að hafa farið inn á völlinn til að hlúa að Eden Hazard, leikmanni liðsins í 2-2 jafntefli gegn Swansea. Mourinho var ósáttur að Carneiro skyldi hafa hlaupið inn á völlinn í ljósi þess að Chelsea var aðeins með tíu leikmenn inn á en komi til þess að sjúkraþjálfari hleypur inn á þarf leikmaðurinn að fylgja sjúkraþjálfaranum af velli og bíða eftir leyfi dómara til þess að snúa aftur. Gerði það að verkum að Chelsea lék með aðeins níu leikmenn í stutta stund en portúgalski þjálfarinn sagði að læknistarfsfólk þyrfti að skilja gang leiksins betur. Hafa enskir miðlar greint frá því að Mourinho hafi ákveðið að þrátt fyrir að hún sé læknir félagsins að hlutverki hennar verði breytt á næstu dögum. Fái hún ekki að mæta á æfingar liðsins né leiki ásamt því að hún komi ekki á hótel liðsins fyrir leiki. Muni hún aðeins sinna mönnum á stofu sinni á æfingarsvæðinu. Nú hefur yfirmaður heilbrigðismála hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu, Jivi Dvorak, komið Evu til varnar en hann segir að Mourinho eigi ekkert að hafa með það að segja hvort sjúkraþjálfari sinni leikmanni. „Það verður að verja aðgerðir læknisins í þessari stöðu og allir sem koma að málinu verða að skilja að læknirinn ráði. Það var óskað eftir þeim og þau fóru réttilega inn á völlinn enda er skylda þeirra að fylgjast með heilsu leikmannana. Knattspyrnustjórinn á ekki að hafa neitt um þetta að segja.“
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Íslenski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Sjá meira