Karl dulbúinn sem kona varð 15 að bana Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. júlí 2015 23:37 Svona var umhorfs á markaðnum eftir sprengjuárásina í dag. vísir/getty
Fimmtán létust og 80 eru særðir eftir sjálfsmorðssprengjuárás á fjölmennan markað í höfuðborg Tsjad, N‘Djamena í dag. Árásarmaðurinn faldi sprengjurnar innanklæða en hann var klæddur í búrku frá toppi til táar. Þeir látnu, níu konur og fimm karlar, voru öll starfsmenn á markaðnum. Árásarmaðurinn, sem ekki hefur enn verið borið kennsl á, var þá einnig á meðal hinna látnu. Maðurinn var dulbúinn sem kona en lögreglan reyndi að aftra för hans þegar hann hugðist ganga inn á markaðinn en í Tsjad er ólöglegt að klæðast búrkum sem hylja allan líkamann. Búrkubanni var komið á í landinu eftir sambærilegar árásir um miðjan júnímánuð þar sem sprengjur sem einnig höfðu verið faldar innanklæða drógu á fjórða tug til dauða. Sjónarvottar segja að árásarmaðurinn, sem var einn á ferð, hafi kyrjað bænir á arabísku áður en hann lét til skarar skríða. Það var ekki fyrr en eftir árásina sem lögreglan áttaði sig á því að um karlmann hafi verið að ræða. Þrátt fyrir að enginn hafi lýst yfir ábyrgð á ódæðinu er talið líklegt að um vígamann á vegum hryðjuverkasamtakana Boko Haram hafi verið að ræða. Samtökin hafa lengið hótað tsjadískum stjórnvöldum vegna stuðnings þeirra við nígeríska stjórnarherinn í baráttu sinni við samtökin. „Það er hræðilegt að þetta skuli gerast meðan hið heilaga Ramadan stendur yfir,“ sagði einn íbúi svæðisins í samtali við Reuters. „Og það við hliðina á stærstu moskunni í N‘Djamena.“
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Sjá meira