Erlent

Flugvél Malaysian Airlines nauðlenti

Flugvélin á brautinni í Melborne.
Flugvélin á brautinni í Melborne. Vísir/EPA
Airbus 330 þota frá Malaysian Airlines þurfti að nauðlenda á flugvelli í Melbourne í Ástralíu þar sem útlit var fyrir um að kviknað hefði í vélinni. Vélin var nýtekin á loft frá Melbourne og var á leið til höfuðborgar Malasíu, Kúala Lúmpúr.

Vélin hnitaði nokkra hringi yfir flugvellinum og sleppti bensíni úr tönkunum áður en hún kom inn til lendingar í nótt. Vélin lenti síðan án nokkurra vandræða og enginn eldur reyndist vera um borð. Malaysian flugfélagið hefur verið í miklum kröggum undanfarið en á síðustu misserum hafa tvær þotur þess farist með manni og mús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×