Erlent

Barnahjálp vísað frá Pakistan

Skrifstofum samtakanna hefur verið læst af lögreglu.
Skrifstofum samtakanna hefur verið læst af lögreglu. Vísir/AFP
Yfirvöld í Pakistan hafa fyrirskipað mannúðarsamtökunum Save the Children, eða Barnahjálp, að yfirgefa landið. Lögreglan hefur innsiglað skrifstofur samtakanna og erlendu starfsfólki þeirra gefinn fimmtán daga frestur til þess að yfirgefa landið.

Stjórnvöld saka samtökin um and-Pakistanskan áróður en þau voru á sínum tíma bendluð við falska bólusetningarherferð sem CIA, bandaríska leyniþjónustan skipulagði, til þess að finna hryðjuverkaleiðtogann Osama bin Laden.

Samtökin hafa alla tíð þvertekið fyrir að hafa tekið þátt í verkefninu. Ástæða brottvísunarinnar nú er hinsvegar óljós og hafa yfirvöld ekkert gefið út um það enn sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×