Þrír hörkuleikir í enska boltanum í dag Anton Ingi Leifsson skrifar 1. mars 2015 08:00 Úr leik Liverpool og City í fyrra. Vísir/Getty
Það er heldur betur sófa sunnudagur í dag, en þrír stórleikir eru í enska boltanum. Veislan hefst klukkan 18:00 og stendur langt fram eftir degi svo sófadýrin þurfa nánast ekkert að standa upp úr sófanum. Í hádeginu, nánar tiltekið klukkan 12.00 eru það Liverpool og Manchester City sem mætast á Anfield. Þessi lið börðust um Englandsmeistaratitilinn í fyrra, en City hefur ekki unnið á Anfield frá árinu 2003. Liverpool hefur verið á góðu skriði undanfarið og unnið síðustu fimm leiki. City þarf nauðsynlega á öllum stigunum að halda ætli þeir sér að setja einhverja pressu á Chelsea sem leikur ekki í deildinni um helgina, vegna úrslitaleiks í deildarbikarnum. City getur minnkað bil Chelsea í tvö stig, en LIverpool getur skotist upp í fimmta sæti með sigri. Klukkan 14.05 fær Arsenal svo Everton í heimsókn. Arsenal lá illa í vikunni gegn Monaco í Meistaradeildinni og er staðráðið í að bæta upp fyrir þau mistök, en Monaco vann fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni 1-3 á Emirates. Everton komst áfram í Evrópudeildinni með auðveldum sigri á Young Boys. Everton hefur ekki unnið í síðustu átján viðureignum á Emirates, en Everton hefur spilað illa það sem af er tímabili. Þeir sitja í fjórtánda sæti deildarinnar, en Arsenal er í fjórða sætinu. Þeir geta skotist upp í það þriðja með sigri. Klukkan fjögur mætast svo Lundúnarliðin, Chelsea og Tottenham, í úrslitaleik deildarbikarsins. Fyrirfram er öll pressan á Chelsea, en þeir eru án Nemanja Matic sem tekur út leikbann eftir að hafa stjakað við Ashley Barnes, leikmanni Burnley, í leik liðanna á dögunum. Chelsea er á toppnum í deildinni, en Tottenham í því sjöunda. Deildin skiptir þó engu máli þegar komið er í svona leiki. Það er ljóst að bikar fer á loft á Stöð 2 Sport/HD í dag, en leikið er til þrautar á Wembley.Enska úrvalsdeildin: 12.00 Liverpool - Manchester City Stöð 2 Sport 2/HD 14.05 Arsenal - Everton Stöð 2 Sport 2/HDEnski deildarbikarinn: 16.00 Chelsea - Tottenham Stöð 2 Sport/HD
Enski boltinn Mest lesið Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Týndur í fjórtán daga Fótbolti Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fótbolti Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Val milli grunngilda hreyfingarinnar og gylliboðs Infantino Fótbolti Bavíanar í Bandaríkjunum vilja græða peninga Sport Matthías Guðmundsson: „Þá skaðar það sálina líka“ Fótbolti Fótbraut andstæðing og verður í banni þar til beinið grær Fótbolti Fleiri fréttir Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sjá meira