Ljón beit ferðamann til dauða Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. júní 2015 17:44 VÍSIR/AFP
Bandarísk kona lést er ljón stökk inn um glugga bíls í Suður-Afríku í dag. Árásin átti sér stað í Lion Park-garðinum skammt frá höfuðborginni Jóhannesarborg en samferðamaður konunnar slasaðist einnig alvarlega. Talið er að þau hafi ekið um garðinn með alla glugga bílsins opna. Scott Simpson, starfsmaður garðsins, segir að nákvæm atburðarrás liggi ekki fyrir að svo stöddu en talið er að ljónið hafi bitið konuna með fyrrgreindum afleiðingum. Maðurinn sem ferðaðist með henni er sagður hafa slasast í átökum við ljónið er hann reyndi að koma konunni til bjargar.Lion Park-garðurinn í Suður-Afríku er vinsæl áfangastaður ferðamannaMYND/SKJÁSKOT„Starsfólkið reyndi hvað það gat til að koma ljóninu úr bílnum. Sjúkrabílar voru samstundis kallaðir á staðinn en allt kom fyrir ekki,“ sagði Simpson í samtali við þarlenda fjölmiðla. Hann bætti við að þeim sem sæki garðinn heim sé ráðlagt að hafa glugga bíla sinna lokaða öllum stundum. „Við gerum öllum þetta mjög ljóst. Við höfum komið upp skiltum á víð og dreif sem minna fólk á að hafa gluggana lokaða. Þá látum við fólk fá dreifimiða sem imprar ennfremur á skilaboðunum þegar það kemur inn í garðinn. Í skil ekki hvers vegna fólk heldur þá að það sé í lagi að hafa gluggana opna,“ sagði Simpson. Árásin í dag er sú þriðja í garðinum á síðastliðnum fjórum mánuðum. Hér að neðan má sjá myndband úr garðinum, sem tekið var upp í mars síðastliðnum, en í því sést hvernig ljón í garðinum opnar bílhurð tökumannsins svo mikil hætta skapast.
Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Innlent Fleiri fréttir Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Sjá meira