Reisa lúxushótel á stærð við sjö Smáralindir Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. maí 2015 19:48 Hönnuður hótelsins segir það eiga að vera nútímalega túlkun á hefðbundnu eyðimerkuvirki. MYND/DARGROUP
Stærsta lúxushótel heims mun rísa í Mekku í Sádí-Arabíu, helgastu borg múslima, innan tveggja ára. Hótelið, sem mun bera nafnið Abraj Kudai, mun alls þekja um 430 þúsund fermetra en til samanburðar er Smáralind í Kópavogi um 62 þúsund fermetrar að stærð. Verður fullreist hótelið því um sjöfalt stærra en íslenska verslunarmiðstöðin. Talið er að verkið muni kosta um þrjá og hálfan milljarð dala, um 467 milljarða króna. Hótelið mun samanstanda af tólf, 44 hæða turnum sem munu innihalda alls rúmlega 10 þúsund herbergi, 70 veitingastaði, fimm hæðir sem einungis konungbornir munu hafa aðgang að, ráðstefnuhöll í fullri stærð og fjöldann allan af þyrlupöllum. Tíu turnar munu veita fjögurra stjörnu hótelþjónustu en turnarnir tveir sem eftir standa verða fimm stjörnu lúxushótel. Hönnuður hótelsins er Dar Al Handash og mun það standa í um tveggja kílómetra fjarlægð frá Mekku. Um 20 milljónir manna heimsækja borgina árlega, þar af 2 milljónir í kringum Hadsjí – pílagrímsferð múslima til borgarinnar. Að sögn hönnuðarins á Abrak Kudai að endurspegla „nútímalega túlkun á hefðbundunu eyðimerkurvirki“. Áætluð verklok eru 2017.
Mest lesið Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fleiri fréttir Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Sjá meira