Enski boltinn

Adam Johnson: Besti mánuður minn sem fótboltamanns

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Adam Johnson.
Adam Johnson. Vísir/AFP
Adam Johnson, vængmaður Sunderland, hefur verið óstöðvandi á nýju ári en hann skoraði eitt marka Sunderland í dag í 3-0 útisigri á nágrönnunum í Newcastle.

Adam Johnson hefur nú skorað sex mörk í síðustu fjórum leikjum og Sunderland hefur náð í tíu stig af tólf mögulegum.

„Ég er bara að upplifa tíma þegar allt gengur upp. Janúar er búinn að vera besti mánuðurinn minn sem fótboltamanns. Ég er að skora mörk og leggja upp mörk fyrir félagana. Þetta er frábært," sagði Adam Johnson við BBC eftir leikinn.

„Mér líður ekkert öðruvísi en áður en þetta er bara farið að detta fyrir mig. Ég var ekkert að reyna neitt annað áður en hlutirnir gengu bara ekki upp. Nú hefur orðið breyting á því og ég nýt þess," sagði Johnson.

Síðustu fjórir deildarleikir Adam Johnson:

Fulham (úti) 4-1 sigur - 3 mörk og 1 stoðsending

Southampton (heima) 2-2 jafntefli - 1 mark og 1 stoðsending

Stoke (heima) 1-0 sigur - 1 mark

Newcastle (úti) 1-0 sigur - 1 mark

Samanlagt: 4 leikir, 3 sigrar, 1 jafntefli - 6 mörk og 2 stoðsendingar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×