Sunderland vann þriðja sigurinn í röð á Newcastle Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2014 12:15 Leikmenn Sunderland fagna hér marki Borini. Vísir/NordicPhotos/Getty
Fabio Borini, lánsmaður frá Liverpool, skoraði eitt og lagði upp annað þegar Sunderland vann 3-0 útisigur á nágrönnunum í Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á St James' Park í dag. Adam Johnson var einnig áfram á skotskónum hjá Newcastle. Sunderland hefur þar með unnið þrjá deildarleiki í röð á móti Newcastle sem hafði ekki gerst síðan árið 1923. Sigurinn í dag var sannfærandi hjá Sunderland en margir leikmenn liðsins áttu mjög góðan leik. Newcastle byrjaði því ekki vel án Yohan Cabaye en besti leikmaðurinn var seldur til franska liðsins PSG í vikunni. Liðið var líka án framherjans Loic Remy sem er í banni. Stuðningsmenn Newcastle létu óánægju sína vel í ljós og það er ljóst að það eru erfiðir tímar framundan hjá Alan Padrew og lærisveinum hans. Sunderland komst í 2-0 í fyrri hálfleiknum. Fyrst skoraði Fabio Borini úr vítaspyrnu á 19. mínútu sem Phil Bardsley fékk og fjórum mínútum síðar fylgdi Adam Johnson á eftir þegar Tim Krul varði skot frá Jack Colback. Jack Colback skoraði þriðja markið á 80. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Fabio Borini. Sunderland hefur nú unnið tvo leiki í röð og fengið 10 stig af 12 mögulegum í síðustu fjórum leikjum sínum. Adam Johnson hefur skorað í öllum fjórum leikjunum samtals sex mörk.1-0 fyrir Sunderand. Fabio Borini skorar úr víti.Vísir/Getty2-0 fyrir Sunderland. Adam Johnson skorar.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Körfubolti Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Körfubolti Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Fótbolti Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Handbolti Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjá meira