Chelsea hafði betur í stórslagnum á Etihad 3. febrúar 2014 17:42
Manchester City hafði skorað í 61 leik í röð þegar lærisveinar Jose Mourinho í Chelsea mættu í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Eins og svo oft áður höfðu liðsmenn Portúgalans betur í stórleiknum, nú 1-0. Mikils var vænst í uppgjöri toppliðanna á Etihard í kvöld og stóð hann svo sannarlega undir væntingum. Gestirnir frá Lundúnum mættu sterkari til leiks í fyrri hálfleik og fengu góð færi áður en mark leit dagsins ljós. Þá tók Branislav Ivanovic, Serbinn í hægri bakverðinum hjá þeim dökkbláklæddu, sig til og hamraði boltann neðst í hornið með skoti frá vítateigslínu. Liðsmenn Manchester City, sem eru taplausir á heimavelli í úrvalsdeildinni í vetur, áttu í mestu vandræðum með gestina sem komust oft í álitlegar stöður. Það var aðeins fyrir klaufaskap Chelsea að forystan var aðeins eitt mark í hálfleik. Áfram hélt baráttan í síðari hálfleik þar sem leikurinn opnaðist upp á gátt. Petr Cech varði aukaspyrnu Yaya Toure með tilþrifum og þá fékk David Silva dauðafæri innan teigs eftir fyrirgjöf frá hægri. Spánverjinn hitti hins vegar ekki markið. Undir lok viðbótartíma átti Svartfellingurinn Stevan Jovetic hörkuskot sem Cech varði vel. Lærisveinar Jose Mourinho héldu út pressu heimamanna og nældu í stigin þrjú. Fyrir vikið er Chelsea komið upp að hlið City í annað sæti deildarinnar. Bæði lið hafa 53 stig en Arsenal er á toppnum með 55 stig. Chelsea vann einnig sigur í leik liðanna á Stamford Bridge fyrr í vetur.
Enski boltinn Mest lesið Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Fleiri fréttir Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Sjá meira