Enski boltinn

Jafntefli niðurstaðan í drullusvaðinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag. Vísir/Getty
Sheffield United og Fulham þurfa að eigast aftur við í 4. umferð enska bikarsins í knattspyrnu eftir 1-1 jafntefli á Bramall Lane í dag.

C-deildarliðið mætti vel stemmt til leiks á heimavelli sínum í dag en aðstæður voru fyrir neðan allar hellur. Ákvörðun var tekin í dag að leikurinn færi fram þrátt fyrir að mikið hefði rignt og leikmenn myndu eiga erfitt með að fóta sig. Sú varð raunin.

Sheffield United komst yfir á 31. mínútu þegar Chris Porter skoraði af harðfylgi úr teignum eftir misheppnað skot liðsfélaga síns. Heimamenn leiddu í hálfleik.

Gestirnir, sem áttu að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik, hresstust eftir hlé. Þeir fengu byr undir báða vængi þegar Íranum Michael Doyle var vikið af velli á 52. mínútu.

Jöfnunarmarkið kom þó ekki fyrr en á 75. mínútu þegar Kólumbíumaðurinn Hugo Rodalleca skoraði. Gestirnir fengu nokkur góð færi til að tryggja sér sigurinn en voru klaufar í drullunni í vítateig heimamanna.

Dregið verður í fimmtu umferð bikarsins síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×