Enski boltinn

Liðsfélagi Gylfa missir af HM í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andros Townsend.
Andros Townsend. Vísir/Getty
Andros Townsend, vængmaður Tottenham og enska landsliðsins, verður ekki með Englendingum á HM í Brasilíu í sumar vegna ökklameiðsla.

Townsend meiddist á ökkla í sigrinum á Stoke um síðustu helgi og verður frá í tíu vikur. Hann spilaði þó bara aðeins síðustu tólf mínúturnar í Stoke-leiknum.

Townsend er á leið í aðgerð á morgun eftir að það kom í ljós í myndatöku að liðbönd voru sködduð.

Townsend var líklegur kandídat í HM-hóp Englendinga en hann átti flotta innkomu í landsliðið fyrir áramót og skoraði meðal annars í fyrsta landsleik sínum á móti Svartfjallalandi.

Andros Townsend er ekki eini enski landsliðsmaðurinn sem missir af HM því Arsenal-maðurinn Theo Walcott sleit krossband í vetur.

Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins, mun tilkynna um 23 manna HM-hóp sinn 13. maí eða daginn eftir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Andros Townsend fagnar marki með Gylfa Sigurðssyni.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×