Mackay líklegastur til að taka við Crystal Palace Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. ágúst 2014 15:00 Mackay kom Cardiff upp í úrvalsdeildina. Vísir/Getty
Samkvæmt veðbönkum er Skotinn Malky Mackay, fyrrverandi knattspyrnustjóri Watford og Cardiff City, líklegastur til að taka við Crystal Palace sem er stjóralaust eftir að Tony Pulis hætti skyndilega í gær. Mackay tók við Cardiff sumarið 2011 og undir hans stjórn tryggði liðið sér sæti í ensku úrvalsdeildinni vorið 2013. Skotinn stýrði Cardiff á fyrri hluta síðasta tímabils, en Vincent Tan, hinn umdeildi eigandi Cardiff, rak Mackay eftir 3-0 tap gegn Sunderland á heimavelli í lok desember. Meðal annarra sem þykja líklegir til að taka við stjórastarfinu hjá Palace má nefna Neil Lennon, Tim Sherwood og Keith Millen. Lennon stýrði Celtic á árunum 2010-2014 og gerði liðið þrisvar að Skotlandsmeisturum og tvisvar að bikarmeisturum. Hann er enn án starfs eftir að hafa hætt hjá Celtic fyrr í sumar. Sherwood stýrði Tottenham á seinni hluta síðasta tímabils eftir að André Villas-Boas var látinn taka pokann sinn. Sherwood fékk upphaflega 18 mánaða samning, en var rekinn í lok síðasta tímabils. Hann hefur verið orðaður við nokkur lið í sumar og að eigin sögn hafnaði hann því að taka við WBA. Millen tók við Palace til bráðabirgða eftir að Pulis yfirgaf félagið. Hann þekkir þá stöðu ágætlega en hann var einnig bráðabirgðastjóri hjá Palace eftir að Ian Holloway hætti í október á síðasta ári. Millen stýrði Bristol City á árunum 2010-2011 með litlum árangri.David Moyes, Gianfranco Zola, Neil Warnock, Chris Houghton, Steve Clarke og Sean Dyche hafa einnig verið nefndir sem næsti knattspyrnustjóri Palace.
Enski boltinn Tengdar fréttir Listi yfir félagaskipti í ensku úrvalsdeildinni Enska úrvalsdeildin hefst á morgun með leik Manchester United og Swansea á Old Trafford. 15. ágúst 2014 12:00 Pulis hættur með Crystal Palace | Vildi fá Gylfa til Palace Tony Pulis er hættur með Crystal Palace aðeins tveimur dögum áður en enska úrvalsdeildin hefst. 14. ágúst 2014 20:04 Mest lesið Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Sjá meira
Listi yfir félagaskipti í ensku úrvalsdeildinni Enska úrvalsdeildin hefst á morgun með leik Manchester United og Swansea á Old Trafford. 15. ágúst 2014 12:00
Pulis hættur með Crystal Palace | Vildi fá Gylfa til Palace Tony Pulis er hættur með Crystal Palace aðeins tveimur dögum áður en enska úrvalsdeildin hefst. 14. ágúst 2014 20:04