Ekki í fyrsta sinn sem Van Gaal byrjar illa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. ágúst 2014 06:30 Van Gaal og Giggs horfa ráðalausir á MK Dons - Manchester United.
Nú reynir á þolinmæði stuðningsmanna Manchester United sem aldrei fyrr. Eftir gott gengi í æfingaleikjum hefur byrjunin á tímabilinu verið erfið, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Lærisveinar Louis van Gaal eru aðeins með eitt stig eftir tvo fyrstu leikina í ensku úrvalsdeildinni og á þriðjudaginn mátti United þola niðurlægjandi 4-0 tap gegn C-deildarliði MK Dons í deildarbikarnum. Van Gaal stillti vissulega ekki upp sínu sterkasta liði, en í byrjunarliðinu voru m.a. leikmenn sem hafa leikið úrslitaleiki í Meistaradeild Evrópu og á HM. Þetta var í fyrsta sinn í 58 ár sem Manchester United tapar fyrir neðrideildarliði með fjögurra marka mun og jafnframt versta tap gegn liði í þriðju efstu deild eða neðar í 136 ára sögu félagsins. Louis van Gaal hefur orðið tíðrætt um að það muni taka hann tíma að innleiða þá hugmyndafræði sem hann vinnur eftir og að stuðningsmenn United verði að sýna þolinmæði á meðan á þessari enduruppbyggingu standi. Hollenski knattspyrnustjórinn bergmálaði þetta stef í viðtölum eftir útreiðina gegn MK Dons. „Þeir verða að trúa á okkar hugmyndafræði. Við erum að byggja upp lið og þú gerir það ekki á einum mánuði, né einu ári,“ sagði van Gaal. „Auðvitað eru þetta vonbrigði, en ég vona að stuðningsmennirnir haldi áfram að trúa á hugmyndafræðina okkur, sem tekur tíma að innleiða.“ Van Gaal hefur oft talað um að liðin sem hann stjórnar séu vanalega sein í gang. „Ef þú lítur á ferilinn þá hafa liðin mín alltaf byrjað rólega. Það er vegna þess að ég læt leikmönnum mínum mikið af upplýsingum í té og þeir þurfa að aðlagast.“ Það hefur þó ekki alltaf átt við, sé einungis litið á úrslitin. Barcelona (í fyrri stjórnartíð van Gaals) og AZ Alkmaar unnu bæði 11 af fyrstu 15 deildarleikjum sínum undir stjórn Hollendingsins og Ajax níu af fyrstu 15. Það er í raun bara Bayern München – og nú Manchester United – sem byrjaði virkilega illa undir stjórn van Gaals. Þýska stórveldið fékk aðeins tvö stig úr fyrstu þremur deildarleikjum sínum og eftir 13 leiki sat liðið í 7. sæti þýsku deildarinnar með 21 stig. Bayern var einnig í vandræðum í Meistaradeild Evrópu, en eftir 4-1 sigur á Juventus fóru hlutirnir að gerast. „Við urðum að vinna þann leik og gerðum það og það var vendipunktur á tímabilinu,“ sagði van Gaal um Juventus-leikinn. Bayern vann 15 af síðustu 20 deildarleikjum sínum á tímabilinu (2009-10), tryggði sér sigur í deildinni og bikarkeppninni, auk þess sem liðið komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Stuðningsmenn United vonast eflaust eftir svipuðum viðsnúningi, en það er hætt við að þeir þurfi að vera þolinmóðir og raunsæir meðan van Gaal kemur sínum hugmyndum á framfæri. Ef marka má fyrstu leiki tímabilsins gæti það tekið lengri tíma en búist var við.
Enski boltinn Tengdar fréttir Vandræðalegur skellur hjá Manchester United í deildabikarnum Manchester United er úr leik í enska deildabikarnum í fótbolta eftir 4-0 skell á móti C-deildarliði MK Dons í kvöld. UNited-liðið hefur enn ekki unnið alvöru leik undir stjórn Louis van Gaal. 26. ágúst 2014 20:59 Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Vandræðalegur skellur hjá Manchester United í deildabikarnum Manchester United er úr leik í enska deildabikarnum í fótbolta eftir 4-0 skell á móti C-deildarliði MK Dons í kvöld. UNited-liðið hefur enn ekki unnið alvöru leik undir stjórn Louis van Gaal. 26. ágúst 2014 20:59